Monday, June 06, 2005

,,Tanta"

Langaði að deila því með ykkur að hún amma mín fékk mig til að lesa minningarbrot um ömmusystur sína, Ástríði Torfadóttur í dag 'Töntu'. Ég las með ákafa og komst að hinum ýmisslegustu hlutum um bæði ömmu mína og Ástríði.

Amma var að rifja upp trúarmismun milli systranna (ömmu sinnar og Ástríðar) :

,,Ég sé til dæmis glöggt fyrir mér svipinn á ömmu þegar við krakkarnir spurðum hana hvaða miðar væru eiginlega í glasi sem Ástríður átti inn í skáp. Þessari spurningu var vísað frá með þögn, jafnvel með votti af vandlætingu. Að sjálfsögðu fengum við þá botn í málið. Miðarnir, sem ekki mátti leika sér með, voru fínir til þess að æfa stafrófið og búa til orð úr, því á hverjum þeirra var vandlega dreginn einn bókstafur. Þetta voru miðar sem Ástríður notaði í leik sem hún fór stundum í með vinum sínum. Smám saman lærði ´þeg að nota rétt orð um það smem á milli greindi ; Ástríður var nefnilega ,,spíritisti" en amma var hins vegar ekki ,,spíritisti." Þegar ég var búin að læra dálítið á orðaforðann úr bókum eins og ,,Bréf frá lántum sem lifir" fór ég að skilja innihald samræðna um trúmál á kvistinum."

Hér talar hún um neftópakneyslu Ástríðar :

,,Ungt fólk í dag á sjálfsagt erfitt með að sjá fyrir sér gamla, gráhærða, smágerða konu raða neftóbaksskorum í fínlegan sveig á handabakinu, lyfta handlegg og soga eitrið fyrst í aðra nösina og svo í hina.

Ástríður fæddist árið 1867 og lést árið 1949. Hún var greinilega stórmerkileg kona og sé ég eftir því að hafa ekki kynnst henni. Hún stundaði andaglas og tók í nefið. Hversu sérstæður getur maður orðið ?

3 comments:

Anonymous said...

hey hringjumst á!

Á Dagskrá 20 júlí 2005 : Vala & Lára fara til Mallorca. Já elskan mín, það er ákveðið, ég er sko með sólheimaglott allan hringinn

María Rut said...

Sko... til lukku með það að vera að fara til Mallorca. Ég sver það Vala að einn daginn kemuru til mín og segist vera að flytja til Mallorca þú ert óð.. bandóð ! :D

Klara said...

Ég skrifaði mixdisk fyrir þig... svo nú neyðistu til að finna mig einhversstaðar í borginni!
P.S. Finnst þér subway kökur góðar?