Ég hef í staðinn horft á þetta hérna svona hundrað sinnum í kvöld og einnig rakst ég á þetta hérna að mér skuli hafa fundist þetta æðra öllu !
En er ég sú eina sem að elskaði þennan gutta. Fann reyndar ekki uppáhalds myndbandið mitt þar sem jólin eru, man að ég horfði á þetta oft og títt.
Mér til mikillar undrunar ætla ég að reyna að fara snemma að sofa, klukkan er 4 og það er samt orðið bjart, reyndar er alltaf bjart núna. Finnst það frábært!
Búin með 7 próf 3 eftir ójá.
Saturday, May 13, 2006
Svefn er fyrir hina veikburðu
Ég veit ekki lengur hvernig það er að vera ekki þreytt og fersk. Ég hef ekkert tímaskyn, né veit aldrei hvaða vikudagur er. Ég lifi eftir prófatöflunni. Skyndilega er klukkan orðin 7 um morguninn og ég búin að lesa endlaust lengi, ómerkilegar danskar bókmenntir. Ég ákveð því að leggja mig í einn og hálfan klukkutíma og halda svo ótrauð áfram. Þegar ég hef eigi fengið mikinn nætursvefn þá get ég heldur ekki sofið á daginn þannig að þetta er einn stór vítahringur. Ég reyndi að sofna í dag, gerði amk heiðalega tilraun en það tókst ekki.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Til hamingju með afmælið Mæja mín.
Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún Majaaaa
hún á afmæli í dag! :D
Til hamingju. Njóttu dagsins í botn elskan!;*
Til hamingju með daginn elskan!:* :)) :)
Til haaaamingju með afmælið!!
Post a Comment