Tuesday, May 09, 2006

Bavíani !

Svona til að fagna söguprófslokum kemur eftirfarandi eftirþanki :


,,Stærsta einingin var hersveit (legio), sem lengst af samanstóð af um 4200 fótgönguliðum og 300 riddurum. Sveitinni var síðan skipt niður í misstórar herdeildir. Hverri deild fylgdi lúðraþeytari og merkisberi, en deildarmerkið var hverri deild heilagt. Lögðu menn allt í sölurnar til þess að merkisstengur féllu ekki í hendur fjandmanna og eru til sögur herforingja sem létu þeyta þeim inn í fylkingar óvina til að eggja hermenn sína til framsóknar”

Minn þenkjandi hugur ómar um að hlátri við tilhugsununina af mæðrunum sem kveðja syni sína, hermennina, er þeir ganga á vit örlagana. Í óvissu um hvort þeir munu liggja í valnum innan nokkura missera eða hvort þeir muni sigra fyrir hönd þjóðar sinnar og fella stolt tár af þjóðarkvarmi, sem rennur saman í brunn þjóðarinnar.

Ímyndiði ykkur fyrir mig, stolta... lúðraþeytarann sem gengur frá bæjardyrum, með lúðurinn í vinstri og samloku, smurða af mömmu í hægri. Stoltur gengur hann með öllum riddurunum og fótgönguliðunum og blæs úr sér líftóruna!

Ímyndiði ykkur svo fyrir mig, stolta .... merkisberann sem gengur frá bæjardyrum með deildarmerkið undurfagra, sem móðir hans er nýbúin að strauja undir arminum. Hann veit að hann er í þann mund að fara að sigra heiminn. Sem merkisberi.

h0h0h0

6 comments:

Anonymous said...

Hahaha þekki þig ekkert, en veit hver þú ert, ert með mér í MR.. Þú ert með snilldar húmor ! Man þegar ég var í þessu fagi Rómvarveldi? gula bókin ekki satt ?

Anywho, haltu áfram þessari fyndni !

Anonymous said...

í augnablikinu hef ég ekkert að segja. en nú er komið nýtt augnablik og mig langar að segja takk fyrir mig. helst sem fyrst allavegana

María Rut said...

haha Kalli ég dýrkaþig :D

Anonymous said...

Ætli Anonymous hafi nokkuð verið einn af diskó-dimmiteringunum sem við hittum á Prikinu helgina fyrir páska? ..Bara pæling :)

Anonymous said...

My plan man. Þú ert fyndin. Ég hló.

Ps. Þetta er pottþétt sá, ég er til í að leggja lífið að veði.. Eða kannski ekki alveg en það er bara töff að segja það.

María Rut said...

haha já Bigga það getur vel verið, gæti farið og spurt hann, en það er einum of lúðalegt, sérstaklega ef þetta var ekki hann :/ :)

Annars sá ég hann um daginn, ekki í diskó stu búningnum, merkilegt !