Hér er ég stödd í framtíðinni en þið í fortíðinni. Árið 2006 er gengið í garð hérna hjá mér, búið að skála kampavíni og henda krökkunum í sundlaugina. Fyrir ykkur hin sem að þurfið ennþá að bíða í 3 klukkutíma eftir nýja árinu þá er þetta algjörlega frábært ár hérna megin sem að þið munuð kynnast eftir 3 klukkutíma, flugeldarnir hérna voru sérstakir enda ólöglegir en þetta var áhugavert. Bubbles tekur núna við og kannski Rouge hver veit.. Skemmtið ykkur fallega kæru vinir og ekki djamma of fast :)
2 comments:
Hæ... ekki komin????
Hæ elskan. Veit þú ert að skemmta þér konunglega á tónleikunum núna!!! :) bið að heilsa Damo hehe.. en vidi bara þakka þér fyrir daginn í dag og vonast til að sjá þig sem fyrst! :)
Post a Comment