Að undanförnu, sem sagt í jólaprófatörninni hef ég stundað þann ósið að fara að sofa á morgnanna og vakna á morgnanna, sumsé farið að sofa í kringum 4-6 og vaknað um 9 leitið. Mér til ama, forvitni og undurs hef ég lært margan athyglisverðan hlut af þessu vökuferli mínu. Ég hef uppgötvað það að geðveiki maðurinn sem býr við hliðná mér spilar ávalt 9. Sinfóníu Beethovens áður en hann háttar, konan sem býr í íbúðinni sem ef fyrir ofan mig sefur aldrei, hvort sem það er klukkan 2,4 eða 6 hún er ávalt labbandi um í háhæluðu skónum sínum. Ætli hún sé ein af uglunum og leðurblökunum? Kannski er hún batman ? Kínverjarnir sem búa í næsta húsi fá sér gjarnan næturgöngu í kringum 2 leitið og fólkið sem býr við hliðiná mér fílar Led Zeppelin. Það fylgir ekki sögunni hvort ég hafi lært eitthvað í námsefninu, en ég lærði mjög mikilvæga hluti um lifnaðarhætti nágrananna !
Úganda eftir sólarhring, get ekki beðið !
4 comments:
;D gaman að því:P en GOÐA FERÐ OG ELSKA ÞIG Í KLESSU OG HAFÐU ÞAÐ YNDISLEGT :D:D =* =*
Skemmtu þér vel í Afríkunni;) Og gleðileg jól og farsælt komandi ár Maja mín;) :D hó hó hó....
heh.. Skemmtileg blanda af nágrönnum þarna, kannski það verða einhverjir skemmtilegir líka þarna sem.. ehh, þú ert líklega komin til.. í Úganda.
En hvernig sem er vona ég að þú getur haft það sem best yfir hátíðarnar. Síðan sjáumst við á næsta ári.
Skila kveðju til Afríku.
Þetta kallar maður að slá tvær flugur í einu höggi. Að læra námsefnið og fræðast um atferli nágrannanna í leiðinni.
Hafðu það gott um jólin í Úganda. Jólakveðjur frá Ibizafirði.
Post a Comment