Sunday, March 20, 2005

Sjitturinn Titturinn...

Ímyndiði ykkur þessar aðstæður..

þú ert ný komin heim og ætlar á klósettið. Nýtur þín vel þar og lýkur þínum ,,verkum" svo allt í einu ertu bara búin að fæða barn án þess að hafa vitað að því að vera barnshafandi. Bara uppúr þurru er komið barn og þú ert á klósettinu !

Þetta gerðist víst um dagin hjá konu hérna fyrir vestan. Hana grunaði ekki einusinni að hún væri ólétt. Maður getur varla ímyndað sér svona lagað og þvílíkt sjokk hefur þetta verið hjá konunni. Þið vitið um morguninn vaknar hún alveg bara ,,jæjja ætti maður að gera eitthvað sniðugt í dag " og svo bara ajj úbbs barn .. ó..

Þetta þykir mér skondið nokk... og þetta sannar það greinilega að allt getur gerst !

læt þetta duga í bili
-MRK

3 comments:

Anonymous said...

jáá.. einu sinni gerðist þetta fyrir mig

Anonymous said...

Maja, old news;) frétti þetta daginn sem það gerðist.. ööhh;) komdu nú með eitthvað nýtt í pokahornið!! jippe

María Rut said...

það er aldrei neitt nógu gott fyrir þig ! :(