Monday, March 21, 2005

Sitt lítið af hvoru ...

Mér finnst það merkilegt nokk að það er búið að finna skýringu hversvegna maður fær lög ,,á heilann" en það voru vísindamenn sem að fundu það út með því að mæla út hvar laglínan festist í heilanum og heilinn tekur mismunandi á móti lögum eftir því hvar laglínan kemur á heilann. Þetta finnst mér mjög áhugavert. Það var líka mismunandi hvort það var sungið í laginu eða ekki. Svo koma líka boð. Þegar þú heyrir sérstakt lag sem veldur því að heyrnarsvæðin í heilanum taka að starfa, getur það leitt til þess að upp komi sjónrænar minningar líka. Til dæmis koma upp minningar af því þegar þú fórst á skólaball, og fyrst heyrðir þetta ákveðna lag. Það hefur oft hennt mig allaveganna.

Annars allt tussuflippað að frétta af mér. Vaknaði klukkan 8 til þess að læra, fór reyndar heim til ömmu og grátbað um vægð og fá að sofa til klukkan 9 og amma lét það eftir mér og á hún ást mína alla skilið fyrir það því að ég vaknaði mjög fersk og tilbúin í stærfræðina. Móðir heldur til Lúndúna á miðvikudag og mun þar hitta hann elskulega faðir og koma þau saman aftur til Íslands. Hef ekki hitt hann síðan í janúar og hlakka mjög mikið til þess. Hann er spes..

Gleymi því aldrei þegar að við vorum svona 15 krakkar í garðinum hjá mér í fótbolta þegar ég var ,,strákur" og yngri og var mikill hasar og læti. Sérstaklega þar sem að hann Ingvi Hrafn var með í för. Pabbi var orðinn frekar pirraður þar sem hann sat inní stofu og horfði á sjónvarpið en heyrði ekkert sökum láta og æslagangs. Fór kallinn ekki útí glugga og öskarði ,,hey krakkar sáuði stóra skemmtiferðarskipið í firðinum" og við þutum öll af stað í leit að skemmtiferðaskipinu og pabbi settist aftur í sófann og gat hlustað á sjónvarpið og fékk frið.
Við leituðum heillengi og það var ekkert bévítans skemmtiferðaskip í firðinum þannig að við fórum vonsvikin til baka og héldum áfram að spila fótbolta pabba til mikillar óhamingju.

-Þetta er svona innri maður pabba. Hann hefur oft verið algjör púki í sér en hann er þó eflaust sá allra skondnasti.

1 comment:

Anonymous said...

Já Maja mín:) Ég gleymi því seint þegar ég keyrði með Bjarna pabba þínum og Ívari yfir á Ísafjörð eftir hörku götuteiti, Bjarni karlinn orðinn ögn hífaður, og tók eitthvað lag með Mary J Blidge ;) það er eitt það fyndnasta sem ég hef upplifað, hann er ágætur karlinn:)