Wednesday, March 16, 2005

Áhugavert samtal

Samtal hjá systkinum ;

Bróðirinn: ,,Afi þinn er með skegg"
Systirin : ,,Amma þín er með skegg "
Bróðirinn : ,,amma þín er með krullur"
Systirin: ,,Amma þín er bjánaleg"
Bróðirinn: ,,Amma þín er með ljótan heila"
Systirin: ,,Amma þín er með ljót eyru"
Bróðirinn: ,,amma þín er feit"
Systirin: ,, amma þín er feitari"
Bróðirinn : ,,amma þín er feitari en fíll"
Systirin : ,,Amma þín er gömul"
Bróðirinn: ,,hey er amma þín ekki líka amma mín ? "
Systirin : ,,uuu.. eigum við ekki bara að fara og fá okkur ís? " 8-)

Fjölskylduerjurnar geta flækst og er þetta gott dæmi um það.. glöggt fólk sér.. að þau voru að tala um sömu ömmuna.

2 comments:

Klara said...

Vinkona mín var einmitt einu sinni að skamma bróður sinn sem svaraði:
"hey, róleg á því, var ég að móðga mömmuðína eða???"

hihihi

Anonymous said...

já.. við þessar upplýsingar hef ég fundið tilgang lífsins Klara mín ! :)