Ég biðst hér með innilega forláts af bloggleysis undanfarið.
Páskarnir hafa einkennst af mikillri músik, fjöri, hlátrasköllum og gleði. Margir súrir hlutir gerðust og einnig margir spes og ennþá fleiri skemmtilegir hlutir...
Ég, Sunneva og Herdís fórum t.d í vettfangsferð í Önundarfjörðinn þar sem mikið fjör var og endaði það á því að við fórum á Holtsströnd og tókum smá sprett í sjónum.
Það var alveg yndislegt að hafa þær hérna um páskana og var margt brallað sem verður ekki sagt hér og nú.
Páskadagur var hreint út sagt ,,brilliant" enda er fjölskyldan mín feikna skemmtileg og hýr. Vaknaði of seint í páksahádegisboðið og það var búið að hringja tvisvar á eftir okkur áður en ég, Binna og Illugi dröttuðumst af stað og upp á Sólbakka. Þar beið okkar yndislegur hádegisverður með smá súkkulaði páskaeggja ívafi. Við tók yndislegur tónlistardagur með Ólöfu, Dagnýju,Illuga,Binnu og mér. Það var spilað og sungið fram eftir og við tók kvöldmaturinn, dýrindis kvak kvak með berjasósu. Eftir matinn tók alvaran við.. ég, Guðrún Inga, Valur, Binna,Einar Oddur, Diddi,Dagný og Ólöf og við tók.. actionary þetta var mjög intresant og sérstaklega þegar að Bakkus bættist með í fjör hjá nokkrum aðillum. Sér í lagi þegar að Guðrún Inga ákvað að leika Kúamykju með miklum tilbrigðum ! Eða þá þegar Ólöf lék fána, aðra eins snilld hef ég fáum sinnum orðið vitni af.
En núna eru mamma og pabbi bara að renna í hlaðið ný komin frá Lundúnum og hlakka ég mjög til þess að hitta þau.
sæl að sinni :)
3 comments:
Hey... hvenær ferðu suður eiginlega ..... ?? ég er nefnilega að fara á næsta föstudag með flyvemaskinen :))) Allavega heyri í þér sykurpúði
-yfir og út
Frábært blogg Maja litla mín með a-i. Gasa gasa gasa gaman yfir páskahelgina - við auðvitað rokkuðum í actionary, vorum bara óheppnar :)
Kv. Kúaguslungurinn.
majarut.blogspot.com is very informative. The article is very professionally written. I enjoy reading majarut.blogspot.com every day.
faxless payday loan
payday loan
Post a Comment