Vá ég er búin að vera svo slöpp með þetta blogg núna uppá síðkastið. En nú munu róttækar breytingar ganga í garð, breytingar sem þið hafið aldrei upplifað áður, breytingar sem þið dreymduð aldrei um að þið myndum einhverníman upplifa, breytingar sem að heimurinn mun standa hjá og horfa uppá með gapandi munni, augum og nefi. Breytingar sem að enginn mun trúa að eiga sér stað, breytingar sem ekki einusinni frelsarinn sjálfur getur atorkað. Breytingar sem að þið kæruið vinir eruð í þann mund að veraða vitni að. Jájá ok ég skal fara að blogga oftar...
Ég er með verstu sektarkennd í heimi. Hef ekkert lært allt páskafríið. Ég sem ætlaði að vera svo róttæk og dugleg, ekki það að ég hafi ekki skemmt mér konunglega á Íbizafirði sem eru reyndar orsök þess hversvegna ég hef ekki lært. Jú ég skundaði reyndar í eymd minni heim til ömmu og afa og lærði heilar 5 sannanir sem eru jú reyndar 1/8 af því sem ég þarf að kunna fyrir prófið. Ekki bætir það úr skák að þegar ég vaknaði núna í dag klukkan að verða 16:00 og hringi spök í Jónas:
Ég: Hæ Jónas kútur, hvað segiru gott? Hvað ertu að gera?
Jónas: Uhh ég er að læra...
Ég: Dóh
Svo gerist ég róttæk og hringi í Dagnýju vinkonu:
Ég: Hæ Dagný mín, hvað segiru gott? Hvað ertu að bardúsa?
Dagný: Uhh ég er að læra....
Ég: (í örvæntingu minni) jáa.. læra segiru.. sniðugt? Hvað ertu að læra? (deyja úr sektarkennd)
Dagný: Félagsfræði, þú veist það er stúdentspróf eftir viku ?
Ég: Dóh, já ég ætla að fara að læra þá bara líka (í sorgmæddum tón)
Þá hleyp ég upp, frelsuð af sektarkenndinni, lít í hringum mig, en finn hvergi félagsfræðibókina mína sem min minnir að ég hafi ekki opnað í allan vetur. Mentaðurinn algjörlega í hámarki hjá mér. En uppgötva ég þá ekki bara að ég gleymdi henni líklegast fyrir vestan!
Setkarkendin komin í hæðir sem enginn hefur upplifað áður !
e.s takk Íbizafjörður fyrir geðveika páska (er enn í afneitun)
4 comments:
Félagsfræðibókin þín finnst ekki hér á Vestfjörðum:(
Kv, pabbi
Þetta er allt í lagi. Ég hef aldrei lært, get varla sagt að ég kunni að læra. Samt slepp ég alltaf með fínar útkomur á prófum.. Já alveg rétt... Ég er í MÍ!!
Hahaha.. :)
En það var nú gaman að sjá þig smá þarna á laugadaginn ! ;**
-Margrét Alda
Haha takk fyrir kommentin krakkar :D En já Helga Lind, vel mælt, er að spá í að gera þetta að lífspeki minni ! Eða ekki, æj ég veit ekki...
En ég held ég verði bara að leita betur, i-podinn minn finnst heldur ekki, skil þetta ekki... En já Margrét mín ægilega gaman að hitta aðeins á þig kæra vinkona ;*
Post a Comment