Tuesday, March 28, 2006

Insomnia

Ég svaf afar takmarkað seinustu nótt. Er búin að strögglast við það í allan dag að halda mér vakandi svo ég myndi nú ekki rústa öllu "kerfinu" mínu og þá hlaut að fylgja með ákveðinn galsi og ruglumsullumháttur Maríu:

Ég og Illugi sátum í sófanum heima að horfa á Family Guy og borða kvöldmat (svona er þetta þegar Binna er ekki heima ástand? ) En það var verið að gera grín að einhverju svona guðtengdu og kristilegu og þá spurði ég;

Maja: Er þetta ekki Guðspjall?
Illugi, lítur á mig sposkur og segir; ha? hvað meinaru?
Maja, ákveðin: já túlkast þetta ekki sem Guðspjall?? Mér þykir þetta ekki við hæfi.
Illgui, afar ringlaður: María Rut, hvað ertu að meina? Guðspjall?
Maja, ekki að kveikja á perunni: jáá Illugi Guðspjall!! veistu ekki hvað það er??
Illugi: Jú auðvitað veit ég hvað það er, en hvernig tengist það þessu?
Maja, pirruð: ohh skiptir ekki máli.
Maja: já djók ég var að meina Guðlast og við skelli skellihlógum.

Mæli ekki með því að sofa í minna en 2 tíma á einni nóttu þá lendiði í svona rugli eins og ég, heilinn minn starfar amk afar hægt þessa stundina og ætla ég því að skunda í bólið.

8 comments:

Anonymous said...

Hahaha, Maja þú ert æði ;*

Anonymous said...

haha! guðspjall..
hvenær kemuru vestur?

Anonymous said...

LOL!Hrikalega fyndið! Þú klikkar ekki á þessu Maja mín.... ;o)

Voðalega er síðan orðin svört... lýsir þetta nokkuð innra ástandi? Gengur ekki allt vel í skólanum og lífinu almennt? :o) Nei bara grín, mjög töff nýtt útlit.

Þín Vigdís.

María Rut said...

Patí mín, ég kem ekki þennan sunnud heldur næsta (Y) jeee

Anonymous said...

ókei:D

Anonymous said...

Maja ég er orðin pirruð á að kíkja á hverjum degi á síðuna og sjá bara etta eldgamla blogg:D Hvernig væri að skella inn einu eldheitu frá ÍSAFIRÐI:) ..p.s hvaða hvaða, fá sms frá þér kl 7 í morgun;) og ég var sofandi úr með djammið! Allavegggga.... vonast til að fá blogg

Anonymous said...

Sammála síðasta ræðumanni það er kominn 15 apríl !!!!

Anonymous said...

Maja.. Blogg?