Dagurinn í dag virtist í upphafi ætla að vera eins og hver annar dagur. Vaknaði á allra síðustu stundu - eins og vanalega, stökk upp um 07:55 og skundaði í skólann. Stundum þakka ég guði fyrir það að búa nálægt skólanum. En er ég geng út mætir mér sami stöðumælavörður og vanalega sem var í þann mund að hrella einhvern óheppinn ökumann. Ég gekk áleiðis niður Fishersundið og þar sá ég iðnaðarmennina sem ég sé á hverjum degi. Hélt áfram yfir Ingólfstorgið og sá þar rónann sem ég sé þar á hverjum degi, gekk svo yfir áleiðis að Alþingishúsinu, fór yfir götuljósin á Lækjagötunni og mætti þar konunni sem ég mæti á hverjum degi á þessum tíma, hlustaði á sömu tónlist í I-podnum og venjulega og var jafn sein og vanalega en þó mæti ég ávalt á réttum tíma þó tæpara gæti það ekki verið, ávalt jafn úldin og forkunnarfögur eins og mér einni er líkt! Geng inní Cösu Nova, lít vonmikil á einkar fína flatskjáinn til þess að athuga forföll kennara og geng svo í tíma. þar sest ég á sama borð og venjulega við hliðiná Dagnýju og býð góðan daginn, alveg handviss um að þessi dagur verði eins og allir hinir - ekki það að ég kvarti yfir þeim. Svo reyni ég að halda mér vakandi í gegnum afar áhugaverðan jarðfræðitíma hjá herra Guðbjarti og svona gengur það. Þangað til að mér verður litið á bekkjarfélaga og góðvin minn, ég riðaði öll, kiknaði í hnjánum, nuddaði stýrurnar enn einusinni úr augunum til að vera alveg handviss um að það sem ég var í þann mund að verða vitni að væri ekki eintóm svefnleysisímyndun í mér! Þetta var blákaldur raunveruleikinn. Karl Dietrich Roth var í skóm og það Converse skóm! Þannig er mál með vexti að hann er ætíð á tánum í sandölum og það er sko hans ,,Þeing".
Tíkarárshátíð á morgun.. taumlaus gleði og kjóllinn fundinn újé !
Mér skilst að Jónas Margeir Ingólfsson hafi hlotið verðlaunin "nágranni ársins". Þau verðlaun hljóta þeir aðilar sem sýna yfirburði í að vera nágrannar... Ég er svo heppin að vera nágranni hans og lofa öllu fyrir á hverjum degi!
10 comments:
Þess má geta að Jónas Margeir góðvinur minn setti þetta inn fyrir mig og bætti seinasta hluta bloggsins inn, en það er í lagi því að mest megnis af þessu er satt og rétt !:)
Hey, ákvað að kommenta meira uppá það að kommenta frekar en að segja e-ð merkilegt,
kalli? í SKÓM?
heimurinn er að fara eitthvað sem ég skil ekki...
já Birta ég bara spyr: hvað næst ??
Gaman að þú skulir ekki vera alveg hætt að tjá þig um það sem helst mætir þér í önnum dagsins María litla. Ég fylgist með í nýju tölvunni og ætla enn að fara að bæta þráðlausa sambandið og fá mér ADSL -eða hvað það nú heitir - sem er víst ennþá betra en ISDN...
Mér þætti sannarlega gaman að vera á tíkarárshátíð, en stendur það víst ekki til boða. Góða skemmtun í kvöld!
Hæ beib! það eru bara 2 vikur í að ég komi suður. Tek það fram að ég kem á fimmtudagskvöldi;) 30.mars. Me love you longtime (K)
P.s. Mannstu eftir laginu Maria með Blondie? Var að heyra það að hugsaði strax til þín !
Hey vei ! Tek frá kvöld og við gerum eitthvað skemmtilegt just like in the old days! ;D En já ég man sko eftir þessu lagi, enda nauðguðum við því big time !:) En vá hlakka til að sjá þig ást;*
ég er enn í sjokki...
já vá
ég lenti í því sama atviki semsagt seinasta föstudag..ég talaði ekki í 8tíma samfleytt..
Hæ Maja :)
Post a Comment