Candidate (Party) Number of Votes % of Votes
Yoweri Kaguta Museveni (NRM) 4,078,911 59.28%
Kizza Besigye (FDC) 2,570,603 37.36%
John Ssebaana Kizito (DP) 108,951 1,58%
Abed Bwanika 65,345 0,95%
Miria Obote (UPC) 56,674 0,83%
Yoweri Museveni vann sem betur fer, en kosningar voru kunngjörðar í gærkvöldi. Fyrir þá sem ekki vita þá er Yoweri Museveni forseti í Úganda og hefur verið við völd síðan árið 1986 og hefur staðið sig með prýði. Tala menntamanna hefur tvöfaldast og á sama tíma tala alnæmissmita lækkað gríðarlega eftir herferð sem hann stóð fyrir gegn alnæmi. Vísitalan hefur lækkað um 20% síðan að hann tók við völdum og því grundvöllur að bættum efnahag. Að mínu mati var helsti mótframbjóðandinn ekki sniðugur, hann heitir Kizza Besigye og er menntaður læknir. Hann er búinn að sitja í fangelsi í dálangan tíma fyrir nauðgun og eitthvað fleira smekklegt. Úganda er bara þannig land að það má ekki við neinum breytingum, það er ennþá á frumstigi og mun bæta sig vonandi meira í framtíðinni enda er Úganda landið sem ég elska mest og best. Mamma og Pabbi voru samt búin að byrgja sig upp af matvælum, vatni og olíu ef uppreisnir skyldu brjótast upp, en það virðist vera allt í góðu lagi. Ég vona bara innilega að landið mitt haldi áfram að þróast í rétta átt og fái að blómgast sem best og mest.
5 comments:
hahaha vá... ein upplýst um kosningarnar í Úganda af öllum löndum... afhverju ?
-Nemandi í MR
bíddu bíddu bara stórtækar breytingar á síðunni? Jæja til hamingju með þetta Maja;) og lengi lifi Úganda:)
ahh já mér leiddist í gær.... þegar ég var að passa.. er þetta ekki fínna eða hvað ? Lengi Lifi Úganda rétt er það !
Það var nú gott að þetta fór allt vel!
Mér brá nú dálítð þegar ég las að það væri ekki lengur landið okkar Ísland sem þú elskaðir mest og best! En eins og þú er ég mjög ánægð með úrslitin í Úganda (Æ, er ekki Ísland lengur landið þitt????). M -7 forseta tekst vonandi ætlunarverk sitt að mennta þjóðina sína til þess að hún verði fær um að taka á sig ábyrgðina sem þegnréttur í alvöru lýðræðisríki fylgir. Það er svo erfitt fyrir okkur að skilja þetta flókna mál!
Post a Comment