Wednesday, February 01, 2006

Hnerr

Vestfirðirnir fóru alveg með mig. Ég kem til baka til Reykjavíkur og greinilega vel merkt með kvef, hálsbólgu og hausverk. Ekki hefur það skánað síðan þá. Fór samt í skólan í dag, en hugurinn var eigi með í för. Svo ligg ég hérna á dýnunni minni núna með tárin í augunum því ég get ekki hnerrað ! Svo rétt í þessu flaug fluga ein og spök framhjá mér, fyrst fór um mig uggur þar sem ég hélt ég væri stödd í Úganda á ný því mér fannst þetta vera moskító fluga. En svo hugsaði ég dæmið til enda og auðvitað var það ekki raunin, nema þá að ég hafi flutt hana með mér er ég kom á Frón í byrjun janúar. Það væri svæsið ef ég hefði flutt inn moskítófluguna sem hefði svo aðlagast loftslaginu og tekið öll völd í flugnaheiminum. Vandamálið yrði þá líklegast bara það hvernig hún myndi fjölga sér, nema þá að það yrði með knappskoti eða einhverju öðru eins afbrigðilegu ! Jæjja alltaf tekst mér að bulla um allan andskotan, en svona er þetta þegar maður er veikur, sér ofsjónir samaber moskítóflugur og fleira.

Ætla að reyna að sofna... jeeee...

p.s held ég sé alveg að fara að hnerra.... jeeeeee.....

2 comments:

Klara said...

ég
þú
popp
ís
Oreo Bañadas
vídjóspóla
trúnó
hláturskast
nostalgía
bráðum?

Anonymous said...

Tókst þú flensudrykkinn? Ef ekki taktu hann inn núna því kannski linast þjáningarnar. Leystu duftið upp í heitu vatni. Alla vegna láttu þér betna fljótt og vel