Wednesday, January 11, 2006

Sálarlausir?

Talaði við fósturmóður mína áðan og sagði hún mér frá því að DV hafði einusinni hringt í hana og boðið henni ókeypis áskrift, hún afþakkaði með hörðum orðum og sagðist geta keypt sér betri klósettpappír útí búð. Sem er alveg satt, DV er ekki einsuinni nógu mikið sorprit til að standast undir kröfum klósettpappírs ! Langar að skrifa aðeins um þessa leiðinlegu atburði sem hafa átt sér stað í íslenskum fjölmiðlum. Í gærmorgun sat ég í 10/11 og sá forsíðu blaðsins og mér hreinlega blöskraði, ekki bara vegna ósiðmennskunnar heldur einnig sökum þess að þetta var á Ísafirði heimabæ mínum. Las greinina og ætlaði ekki að trúa þessu en ég hef ávalt varað mig á því að trúa því sem að er prenta á þetta ,,blað". Svo seinna um daginn kom Binna frænka heim og kom með þær fregnir að maðurinn hafði fyrirfarið sér í dag, þá átti ég ekki orð.
Að mínu mati eru DV hreint og beint út ekkert minni morðingjar en þeir sem að sitja inni og afplána dóm sinn! Þó svo að maðurinn hafi verið sekur eða saklaus þá er ákveðin regla sem að segir að allir eru saklausir uns sekt er sönnuð, málið var að byrjunarstigi og DV hefur engann veginn þann rétt að koma og skipa sig í eitthvað dómarasæti og dæma í þessu máli, þar sem að þeirra úrskurður var mjög greinilegur!
Látum frekar íslenska dómstóla um það, enda er það þeirra vinna. DV drap ekki aðeins mannorð mannsins heldur einnig manninn sjálfan er þá ekki komið nóg? Ég spyr; ætla ritstjórar blaðsins að senda inn blóm í útför hins látna ?
Ég segi einfaldlega hingað og ekki lengra, það verður að bæla þetta blað niður ! Þess vegna skora ég á alla þá sem að nú þegar hafa ekki skrifað undir þetta að skrifa undir, eitthvað róttækt verður að gerast því að ég vil ekki lifa í svona þjóðfelagi.
www.deiglan.com/askorun

25 comments:

Anonymous said...

Hæ ást:* Vil byrja á að segja glæsilegt blogg!! Þetta er alveg rétt hjá þér, þeir eru viðbjóðslegir og gjörsamlega samviskulausir! Það var kanski ekki bara eingöngu DV að kenna að maðurinn framdi sjálfsmorð, en vitaskuld gerði það útslagið!!! Þeir taka hvert einasta orð á lofti og blása það svoleiðis upp að það hálfaværi nóg. Og já ég er alveg sammála þér með það að DV hafði engann rétt á að dæma manninn.Saklaus uns sekt er sönnuð.
En hlakka til að hitta þig Majamín, sakna þín rosalega mikið:*
Kv.Herdís "litla systir" ;)

Anonymous said...

Þetta er atburður sem allir biðu eftir að gerðist, það hafa margir sennilega misst fjölskyldumeðlimi andlega vegna svona forsíðufrétta af ástvinum sínum. Á mínu mati skiptir það engu hvort hann hafi gert þetta eða ekki, hver einasti nýtur þeirra réttinda eins og þú sagðir að vera saklaus uns sekt er sönnuð. EN núna er þetta allt búið að gerast og við getum ekkert gert í því en núna bíð ég eftir því hvað þessi lessað ritstjóri fari að hugsa og að minnsta kosti taka á sig ábyrgðina á þessu. Hann segist ekki eiga neina sök á dauða mannsins en ég trúi ekki öðru en innst inni hljóti hann að fatta þetta. Þetta snýst bara um að græða pening hjá þessum mönnum og ekkert annað skiptir máli. legg til að allir búðareigendur sem selja DV á annaðborð fari að hugsa sinn gang og hreinlega hætti því

Anonymous said...

Ég vissi að það kæmi einhverntímann að því að ég væri 10000% sammála þér með eitthvað málefni! :) og nú er það sko raunin! Ég hef engu við þessa færslu að bæta, hún segir allt sem segja þarf.

Ef stjórnarmenn DV sjá þetta mega þeir alveg endilega adda mér á msn, halldorsmarason@hotmail.com, svo við getum rætt siðferðismál í okkar 300þúsund íbúa landi þar sem allir þekkja alla, í ró og næði.

Anonymous said...

Ég er alveg sammála þessu sem þú sagðir í blogginu!!!...þegar mamma sagði mér þetta í morgunn varð ég svo reið! Hvaða hálfvita dettur í hug að birta svona á forsíðu...við vitum ekki hvort að hann gerði eitthvað! aaa..þetta er svo ljótt!!!! andskotans

kv. Unnur

Anonymous said...

Hæ Maja langt síðan við töluðumst :) En flott blogg hjá þér. Ég er svo sammála þér. Eins og margir hérna eru búnir að segja þá er það bara svívirðilegt að birta mynd af honum (Held að nafn sé líka bannað á grunnstigi, leiðréttið mig ef ég fer rangt með). Ekki væri ég til í að labba um bæinn með það orðspor á mér að ég væri barnanauðgari. Hann gæti ekkert farið út! En já það líður vonandi ekki langt í það að DV leggji pennan á hilluna og hætti að koma með svona bull! Ég er búinn að skrifa undir á deigluna og ég mun alla vega ekki líta augum í þetta blað aftur. Maður verður bara pirraður á svona hlutum.

En já sé þig vonandi fljótlega aftur Maja :D Hafðu samband ef þú kemur í bæinn, þú veist hvar á að finna mig :)

Anonymous said...

Hæ sæta mín:) Þetta eru sláandi fréttir hérna....maður er alltaf að sjá þvílíka vitleysu í þessu blessaða blaði, gat ekki annað en að á endanum færi þetta svona, alveg skammarlegt að það þurfi orðið að kosta fólk lífið svo að eitthvað sé gert í málinu!!!


En hlakka til að sjá þig sæta mín:)

Anonymous said...

Ég gæti einfaldlega ekki verið meira sammála þér. Titillinn einn og sér segir margt sko og held ég að hann sé gjörsamlega réttur. Eru þessi menn þarna sálarlausir? Ég er meira en sammála þér í þessu sem og stór hluti þjóðarinnar og ég vona svo innilega að þetta komi til þess að fólk fær loksins nóg af þessum sora þarna sem að telja sig vera einhvers konar blaðamenn og vera að reka einhvers skonar fréttamennsku, en þetta er allt annað nema það eða allavega farið langt fyrir utan öll velsæmismörk. Morðingjar og ekkert annað, hallelújah Maja ! :) Flott og vel skrifað blogg hjá þér ;)

Anonymous said...

það sorglegasta er að _ÖLL_ þjóðin mun kaupa DV á morgun og næstu daga...
sem þýðir að þeir stórgræða...

Anonymous said...

Það besta sem íbúar þessa lands geta gert er einfaldlega að versla ekki þetta ógeðslega blað. Ef blaðið mun halda áfram (sem mér finnst mjög ólíklegt) þá eigum við öll að taka okkur saman og neita þessu blaði, þá þurfa þeir að hætta ef gróðinn er enginn.
En flott blogg hjá þér Maja :) hlakka til að sjá þig.

María Rut said...

Nákvæmlega Jónas, þetta er það sem að fólk áttar sig ekki alltaf á að með því að kaupa þennan klósettpappír þá er það að styrkja hann og þar að leiðandi halda þeir áfram að skrifa svona fréttir ! Þessvegna vona ég að þjóðin uppgötvi það og kaupi ekki þetta svokallaða ,,dagblað" !

Anonymous said...

Pældu í því maja, maðurinn stytti sér aldur. Það var löngu komið nóg, en þetta gjörsamlega sannnar það að þetta er löngu komið út fyrir ásættanleg mörk.. fáranlegt alveg að þetta "morð" geti ekki einusinni hindrað þessa ómerkilegu og ósiðlegu "blaðamenn.. " já mjög ómerkilegt, satt að segja.. ógeðslegt af þeim..

Þetta var maður sem bjó í sama stigagangi og binni vinur okkar, bara svona smá aukaupplýsingar. Ágætis maður samt, ég sá aldrei neitt að honum , en það er sama.. þetta er orðinn mjög veikur og ógeðslegur blettur sem þarf að laga, þrífa eða hvað sem er.. bara útrýma svona dónum og ruddaskap.. Fantar!

Anonymous said...

Þessir menn sem standa fyrir þessu eru gjörsamlega siðblindir. Ég gat ekki hlustað á ritstjóra DV í kastljósinu áðan, sumt þolir maður einfaldlega ekki að hlusta á. En ég er mjög sammála þér. Skil heldur ekki hvernig þessir menn geta lifað við það að vita að þeir hafa gert e-ð sem leiddi til þess að maður framdi sjálfsvíg. En aftur á móti þá eru þessir menn eins og ég sagði greinilega mjög siðblindir, því þeim virðist ekki líða neitt illa út af þessu. En reyndar held ég að þeir þori bara ekki að viðurkenna hvað þeir hafa í raun og veru gert. Þeir hljóta að sjá það! Maður getur ekkert lýst þessum hryllingi nógu vel þetta er einfaldlega andstyggilegt og já skepnuskapur!

Mjög flott blogg hjá þér Maja mín, segir allt sem segja þarf :) Sjáumst

Anonymous said...

Þetta er alveg hræðilegur atburður og ég tek undir með þér. Gleymum samt ekki að það eru fleiri en ritstjórn DV sem ber ábyrgð. Eigendurnir bera ábyrgð, þ.e.a.s. 365 fjölmiðlar. Jóhannes í Bónus, Jón Ásgeir, Gunnar Smári Egilson og fleiri. Þeir bera líka ábyrgð. Fjölmiðill er í eðli sínu fyrirtæki og eigendur bera ábyrgð á fyrirtækjum sínum. Þeir hafa völdin til að breyta þessu. Annað hvort breyta þeir þessu eða við hættum að kaupa DV. Í raun bera þeir meiri ábyrgð því þeir einir hafa haft tækifæri til að breyta þessu. Ritstjórnin er ráðin af þeim og fær borgað frá þeim fyrir að gera einmitt þetta: særa, lítilsvirða og meiða.

Þó er eitt sem ég er ekki sammála og það er að DV séu morðingar eða engu skárri en morðingar. Jónas Kristjánsson, Mikael Torfason og restin af pakkinu á DV drápu ekki manninn en þeir bera ábyrgð. Ef ég kalla þá morðingja þá er ég að gera það sama og þeir gera og það er að dæma þá áður en dómur fellur. En það breytir því ekki að þetta var ógeðslegt, ósiðlegt og ófyrirgefanlegt.

Svo finnst mér frekar hæpið að sala blaðsins aukist við þessa umfjöllun. Fólk er reitt og ég held að það sé ekki bara hér. Það er mikið fjallað um þetta í þjóðfélaginu og ekki á jákvæðu nótunum. DV er dauðadæmt. Að minnsta kosti hér fyrir vestan.

Anonymous said...

Nokkrar hliðar á þessu máli

Í fyrsta lagi er bannað að birta svona. Þ.e. að hann hefur ekki verið fundinn sekur ennþá, eins og áður hefur komið fram. Þetta er ekki í eina skiptið sem þeir gera þetta og furðulegt að fyrst núna er fólk að taka eftir þessu og gera e-ð í því.
Þeir virðast ennþá vilja elta þann frama sem þeir fengu á því að birta mynd af Steingrími Njálssyni fyrir einhverjum árum síðan, sem fylgdi sagan af konunni sem sá hann taka barn og bjargaði því naumlega. Vissulega jákvætt að upplýsa þjóðina um óvini hennar, en það var líka vitað fyrir löngu að Steinki var snar geðveikur.
Við má bæta að þessi pólisía hjá þeim með allan þennan "sannleika" er nokkuð asnaleg, þar sem að þeir virðast vera að forðast sannleikann um rotnunina í þjóðfélaginu. Á ég þar við Baug.
_

Var þetta nóg til að eyðileggja líf mannsins? Vissulega hefur þetta skaða líf hans all svakalega en sú staðreynd að hann drap sig vekur upp efasemdir mínar um sakleysi mannsins og hvort DV hefur ekki bara rétt fyrir sér. En þar koma aftur á móti siðferðisreglur fjölmiðla í spilið og er það nóg til að hanka blaðamennsku þeirra á.
_

Niðurstaðan er því þessi: þó svo að þeir gætu haft rétt fyrir sér, þá réttlætir það ekki blaðamennskuna. Ákveðnar reglur verða að gilda í svona og ef þeim er ekki fylgt geta mannorð og líf, eins og í þessu tilviki, skaddast illa.
Eina sem hægt er að gera, að mínu viti, er að kvetja fólk til að kaupa ekki bleðilinn. Þá getur þjóðfélagið fyrst losnað við svona sora, verður kannski svolítið erfitt að drepa blaðið, vitandi hverjir standa á bakvið fjármálin hjá þeim, en við verðum að reyna. Svona á ekki heima í okkar friðsæla þjóðfélagi. Það er áskrift af DV hér á heimilinu og ætla ég að biðja foreldra mína um að segja upp áskriftinni í hið fyrsta.

Og að lokum fyrir þá sem náðu að lesa þetta allt, til hamingju.

Anonymous said...

Sammála Unnþóri. Ábyrgðin er aðalega hjá eigendum - Baugi Group.

Annars er löngu vitað að menn eins og Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson séu alveg kolbrjálaðir og myndu gera hvað sem er til að selja.

María Rut said...

Alveg sammála þér Gunnar.. Þeir gera greinilega hvað sem er til að selja, og þeir ýkja og lengja svör allsvakalega. Strákur sem ég þekki fór í viðtal um daginn og svaraði bara ,,já" ,,nei" og í þeim dúr, en viðtalið var heil opna og hann botnaði ekki í neinu hvernig það varð að svona stóru viðtali enda var mörgu bætt við, týpísk vinnubrögð DV. En þegar ég sagði að DV væru morðingjar þá var ég ekki að meina að DV hafði komið og drepið manninn, heldur voru hlutirnir og staðhæfingarnar hjá þeim það svæsnar að það leiddi til sjálfsvígs, eins og ´hann gaf í skyn í þessu bréfi sem hann skildi eftir. En Gísli Baldur alveg hárrétt hjá þér það er náttúrulega þessi ærumeiðing sem á sér stað og sköddun á mannorði manns án þess að sekt hans sé sönnuð, það er það sem er svo alvarlegt við þetta, ásamt mynd- og nafnbirtingu á forsíðu.

Anonymous said...

Það er alveg satt. Þeir hröttu hann út í þetta sjálfsmorð og skepnurnar sjá ekki einu sinni eftir því.

Svo var það skrýtið að sjá Jónas halda því fram að hann hafi gert þetta fyrir þolendur meints kynferðisafbrots. Hvernig græða þeir á þessu? Núna verður maðurinn ekki dæmdur þannig að fórnarlömbin geta þá ekki fengið að sjá manninn dæmdan og fengið réttlætinu fullnægt.

Anonymous said...

ég hvet ykkur að lesa DV í dag!! fórnarlömb að segja frá sinni hlið....

Anonymous said...

Já ég las þetta viðtal og hræðilegir atburðir ef þeir eru sannir. En þetta réttlætir ekki það að maðurinn sé dáinn. Hvað sem hann hefur gert þá réttlæti það aldrei morð, hvorki morð af ásetningi eða sjálfsmorð. Málið er að maðurinn er dauður vegna umfjöllunnar DV um hann og þá skiptir ekki máli hvort hann gerði þetta eða ekki.

Anonymous said...

En finst ykkur ekkert merkilegt að þrátt fyrir að allir séu svona reiðir að blaðið skuli samt seljast eins og heitar lummur? Er þá ekkert að marka það sem fólk er að segja? Getur fólk ekki hamið forvitnina og þorstann í sorann? Bara verður að kaupa eitt blað enn? Eins og það muni ekkert um það? Hvað er að ykkur öllum? Hættið að líta á þetta blað! Hættið að skoða það, hættið að lesa það og umfram allt, HÆTTIÐ AÐ KAUPA ÞAÐ!!!

María Rut said...

Heyr heyr !

Anonymous said...

Það er samt eitt við þetta.. nú eru fórnarlömbin að gleymast! Við vitum nei aldrei með vissu hvort að hann gerði þetta.. Og þetta var mjög ósiðlegt og já bara ógeðslegt af DV.. allt til að græða.. segjast gera lesendum greiða með að segja sannleikann..En það er til önnur leið við að segja sannleikann..Þetta var mjög gróft og liggur við bara verið að segja íslandi að maðurinn sé barnaníðingur þegar það var ekki búið að sanna það! En það sem þeir gerðu var að þeir skrifuðu að hann hefði verið kærður, sem var satt.. ekki það að ég haldi með DV en mér finnst að vorkunin ætti ekki að fara öll til Gísla.. Af öllu að dæma var hann líklegast sekur, því ÖLL þessi fórnarlömb væru líklegast ekki að segja þetta nema þetta væri satt.. þau eru nú orðin það mörg! Líklegast er að hann hafi gert ógeðslega hluti sem enginn ætti að fyrirgefa.. Eyðileggja mörg líf og notfæra sér unglingsstráka, þótt það sé nei ekki búið að sanna það.. Það biðu hans réttarhöld, og hann hefur líklegast vitað að þar hefði hann verið fundinn sekur.. Að lifa með að hafa gert þessa hluti ætti í sjálfu sér að vera nóg til að svipta sig lífi.. Réttarhöldin hafa átt hlut í því og DV hefur ef til vill ýtt honum af brúninni..

Anonymous said...

Það er alveg satt að fórnarlömbin virðast hafa gleymst í þessu máli. Þess vegna las ég viðtalið við eitt fórnarlambið í DV, þó mér hafi ekkert sérstaklega langað til að lesa þetta sorprit. En eins og eitt nafnlaust fórnarlambið sagði í Kastljósinu, þá ætla þau að segja sögu sína seinna. En bara ekki í DV.

María Rut said...

Málið er líka það að með umfjöllun DV um málið sem að leiddi til þess að hann drap sig þá eyðinlagðist mál fórnalambanna og ekkert verður gert í því. Þannig að í raun var DV ekki að hjálpa fórnarlömbunum heldur að eyðinleggja þetta fyrir þeim.

Anonymous said...

já alveg rétt, já þetta var líka ég þarna fyrir ofan og sjáumst þegar þú kemur maja !!