Sunday, December 04, 2005

Loðinn hafragrautur

Sá sem er fyrstur að sanna :

,,Í rétthyrndum þríhyrningi er minnsta hornið þá og því aðeins 30°, að önnur skammhliðin sé helmingur langhliðarinnar" eða ,

,Punktur er þá og því aðeins á miðnormal striks, að hann sé í sömu fjarlægð frá endapunktum þess"... þið ráðið hvora þið takið :)

... fær pakka frá Maju :)

9 comments:

Anonymous said...

PASS!!! Til hvers er verið að reyna að kenna manni svona kjaftæði? Og svo á ég að kallast "stúdent" í stærðfræði.. pff haha:P :)

María Rut said...

nákvæmlega ! :) Virðist samt enginn vera áhugasamur að spreyta sig og fá stóóran pakka í staðinn :)

Anonymous said...

Mér þætti gaman að fá pakka. Og ekki lakara að það sé einhvers konar dægradvöl í honum. Stundum er svolítið einmanalegt hérna í óbyggðunum. Mér leist vel á þessi sýnishorn, en síðari sönnunin fannst mér þó öllu ljósari en sú fyrri.

Anonymous said...

Ég geri allt fyrir pakka en vonandi er þetta rétt því ég er ryðgaður í stærðfræðinni:

Í rétthyrndum þríhyrningi hlýtur eitt hornið að vera 90°. Þá eru 90° eftir því þríhyrningur er 180°. Ef minnsta hornið er 30° þá hlýtur síðasta hornið að vera 60° því 180 - 90 - 30 = 60.

Þetta með punktinn er ég ekki alveg að fatta því ég veit ekki hvað miðnormal er. Hinsvegar veit ég að til að eitthvað sé að miðjunni þarf að vera jafn langt til endanna í báðar/allar áttir.

Það væri gaman að vita hvernig þú tengdir loðinn hafragraut við tvær stærðfræðigátur...

María Rut said...

Góð tilraun þetta með sönnunina Unnþór minn en miður rétt.. Reyndar að hluta til rétt hugmynd en þú þarft að draga nokkur skemmtilegar aukalínur og það sem þú ert að sanna er það að langhliðin sé tvöföld skammhliðin út frá þessum upplýsingum, enginn pakki fyrir þig en ég skal samt kaupa handa þér ís í Hamraborg næst er ég kem vestur á bóginn :) Þú mátt líka eiga stærðfræðibókina mína þar sem ég er búin með þessa bevítans bók þá geturu skemmt þér að sanna 28 reglur þér - að sjálfsögðu, til ánægju og yndisauka, en hún má hún fara norður og niður eða kannski norður og vestur haha ! :)

Anonymous said...

Ööö .. ég ekki fatta nei !

Anonymous said...

látum þríhyrninginn ABC með C=90°vera gefinn. Framlengum BC að B1 þannig að lengdin á BC= lengdin á B1C. Skoðum þríhyrningana ABC og AB1C. Þeir hafa horn ACB = horn ACB1. Lengdin á BC = lengdinni á B1C auk þess sem hliðin AC er sameiginleg.
i) ef horn BAC=30°þá fæst samkvæmt R1 að horn ABC = 60°og þá er þríhyrnginurinn ABB1 er jafnhliða. Þá fæst= c= lenngdin á AB = lengdin á BB1= 2sinnum lengdin á BC = 2a.
ii) ef 2a=c þá fæst að lengdin á AB1 = lengdin á AB = lengdin á BB1 svo þríhyrningurinn ABB1 er jafhliða. Þá er horn BAC = 60°/2 = 30°
Af i) og II) fæst að fullyrðingarnar horn A=30°og 2a=c eru fullgildar Q.e.d.

-btw maja þetta var eftir minni og prófið var skiluru á mánudaginn og eg kann þetta ennþó wóóó :p

Anonymous said...

ég nenni ekki að gera hina núna :p geri hana seinna...við tækifæri hehe

Anonymous said...

Elskan mín sendi þér aðgangsorð og lykilorð á Innu á e-maili.
Kv. pabbi