Monday, December 19, 2005

Úganda beibí

Er komin í paradísina mína, Úganda. Ferðin var löng og strembin eða u.þ.b sólahringur og þremur tímum betur, maturinn var vondur og plássið lítið svo ég sat öll bogin og brengluð og stútaði 4 kvikmyndum á leiðinni, svaf ekki neitt sumsé og er enn vakandi, sem sagt komir tveir sólahringar, geri aðrir betur!
Er ég lennti, hljóp ég inn, var framalega í vísa röðinni, kom maður og náði í töskurnar mínar og ég hlóp beint í faðminn á mömmu, ótrúlega gott! Skunduðum aftur í borgina, í umferð 'ala Úganda, sem er alveg einkar áhugaverð, ekki fleiri orð um það, fór heim og þar hlupu Hörður og Júlía á móti mér og knúsuðu mig og að sjálfsögðu hann faðir minn einnig. Við tók langþráð sturta og verslunarferð í Garden City sem er ,,mollið" hérna úti, þar er búið að skreyta alla bygginguna með blikkandi seríum, voða sérstakt. Eftir það að hafa áorkað það að fjárfesta í jólagjöfum fyrir Hönnu og Kötu, skunduðum við heim til Kristjáns og Lesleyjar í sundlaugina, þar svamlaði ég í dágóða stund, og viti menn ! Komin með bossafar ! En eftir það játaðist ég því að taka eina könustu við Hönnu, Kötu og Júlíu, man svo næst eftir mér liggjandi á stofuborðinu og stelpurnar að reyna að vekja mig, ég gafst upp, lagði mig í smá stund. Í kvöld var svo borðað heima hjá Kristjáni Tilapíu 'ala Kristján og var ekki E Finnson kokteilsósa á boðstólnum í boði Maríunnar. Mamma og Lesley eru búnar að vera að púsla púsl síðan 1.nóvember og eru allir orðnir húkkt á því að klára þetta, þannig að ég aðhylltist þróunarkenningu Darwins og aðlagaði mig að þessum áhugamálum og fór að púsla, það er ekki frásögufærandi hvort ég stóð mig vel en það er aukaatriði. Skellti mér einnig í bíó (hahaha) á King Kong, þar sofnaði ég afar títt inn á milli atriða, enda sátum við í lúxus luxery stólunum og sumar senur voru bara það langdregnar að það var alveg frábært að blunda aðeins. En eftir bíóið fór ég aftur heim til Kristjáns þar sem þar var Púsl-Maraþon. Við pússluðum eins og brjálæðingar, en náðum þó ekki að klára, klárum þetta á morgun, vorum alveg 6 við borðið, ég, mamma, Lesley, Kristján, Churton og Cheriese. Á morgun mun ég vakna klukkan 9 og fara að stuðla að hundakynlífi Talúlu sem er hundur Kristjáns og Lesleyar en þau eru að reyna að láta hana veðra hvolpafulla, taumlaus tilhlökkun! Tek einhverjar áhugaverðar myndir á morgun og set inn.. Þangað til þá... Heyrumst :)

Einnig verð ég að geta þess að það er einkar áhugavert og skemmtilegt að sjá labbandi föt á ný ! Vei !

4 comments:

Anonymous said...

hæ ;D;D;D æ hvað ég er glöð fyrir þig :D eg vona að þu´hafir það YNDISLEGT úti!;D elska þig i klessu og gleðilegt jól, Dagný

Anonymous said...

Gott að ferðin gékk vel elskan. Biðum spennt núna eftir að sjá einkunnirnar þínar :)
kv
hbn

Anonymous said...

Ups, setti þetta komment fyrst á eldgamalt blogg frá 4. des. Elskan mín sendi þér aðgangsorð og lykilorð á Innu á e-maili.
Kv. pabbi

Anonymous said...

gaman að þessu, gísli