Friday, December 09, 2005

Can I borrow your teeth

Áðan sat ég við stofuborðið okkar eða tæknilega séð í herberginu mínu og var að borða mandarínur. Ég leit upp og sá himinninn allan upplýstan en var með i-podinn í eyrunum þannig að ég heyrði ekki nokkurn skapaðan hlut, í fyrstu hélt ég að ég væri orðin virkilega taugaveikluð og firrt af þessum blessuðu prófum en ákvað þar sem að það væri nú rigning úti að spurja Illuga hvort hann hefði nokkuð heyrt í þrumum. Það varð raunin og ég held geðheilsunni, um sinn. Hjúkket.

Ég á að vera að læra núna, ég er komin með námsleiða eða réttara sagt prófleiða, hef verið í prófum síðan í byrjun nóvember nánast. Orðin ótrúlega pró í því að taka próf en vá ég meika ekki meira, búin með 5 próf en það eru aðeins 5 próf eftir, maður sér ekki endann á þessu öllu saman, en alltént þá get ég litið á björtu hliðarnar, ég er að fara til Úganda eftir tæpa viku, það er kannski bara blossinn á himninum sem ég sá áðan, hann ákallaði mig. Vei !

Ég er að hlusta á Leonard Cohen, það minnir mig á tímabilið í vor þegar ég bjó heima hjá ömmu í námsbúðunum fyrir samræmdu prófin, þar sem ég uppgötvaði að amma mín ætti Leonard Cohen á vinyl, það var gleðidagur mikill enda hlustuðum við á þetta daginn út og daginn inn. En hún var nú flottari en ég, hún gat sungið með, ekki skánaði það þegar að Sigrún Gerða frænka kom í hemisókn og þær sungu í kór... svona var vorið í vor, það er svo stutt síðan en samt í raun miðað við þá vaxtarkippi sem lífið mitt hefur tekið svo óralangt síðan. Förum ekkert út í það meir. Ensku-grammartíkin bíður.... spök og mun ég hér með halda áfram...

ahh So Long Marianne var að byrja minnir mig bara á áramótin á Sólbakka þar sem dansinn dunaði og það lag ómaði um allan Sólbakkann, gleymi því aldrei er Sigrún þreif í mig og kenndi mér enskan vals. Indælir tímar.

8 comments:

Anonymous said...

Vá, langt síðan ég hef kíkt hingað! Skamm skamm á mig... Reyndar eru þessi blogg ekkert grín Maja, svo ótrúlega djúp að Sjón gæti lært ýmislegt af þér. Ég sver það að ég þurfti að lesa þetta blogg allavega fjórum sinnum til að skilja staf! "Svona er Maja í dag"

Sé þig ;)

Anonymous said...

Þú er ótrúleg Maja mín:) átt pottþétt eftir að standa þig með sóma í öllum þessum prófum alveg bókað mál:) Vonandi fær maður svo að hitta þig áður en þú ferð út gæskan;) Gangi þér vel í prófunum sem er eftir:) luv´ja;*

Anonymous said...

Elsku Maja, ertu nokkuð að fara á undan mér??? Ég fer sko ekki fyrr en eftir rúmlega viku, þann átjánda desember...

María Rut said...

já það er tæp vika :)

Anonymous said...

HÆhæ :D :) Unnur vinkona Dagnýjar speaking... ÉG ætlaði bara að segja góða ferð og hafðu það ógeðslega gott í afríku :) vildi að ég væri að fara með þér ...já eigðu frábært frí og ég hlakka til að sjá þig aftur brúna að dansa örflugudansinn...btw. þá mun ég heiðra þig á mánudag með því að dansa örflugudansinn látalaust á jólaballi mr-inga ;)

Adíós amígó (K)

Anonymous said...

hæ maja mín :) langaði bara að kasta á þig kveðju fyrst þú ert að yfirgefa vort land er kennt er við ís. hafðu það rosalega gott í afríkunni og ég bið að heilsa ljónunum ;) (eða eru ekki annars ljón í afríku?)
og já auðvitað mun ég fylgja henni unni fast á hæla í örflugudansinum því án hans er ekkert ball! en..ég ætla ekki að hafa það lengra hlakka til okkar endurfunda...hugs and kisses ;*
-dóra *<:)

Anonymous said...

Jei!!!! núna eru allir búnir í prófum, meira segja ég !! :O:O omgs omgs! (reyndar ekki Bjarki hah.. nub)
Leiðinlegt að þú kemst ekki á jólaballið :( en það mun vera tjúttað á fleiri böllum en þessu, og síðan kemstu kannski að því að úganda is da party place.
En annars.. Leonard Cohen er djúpur.. heh,


Fyrst tökum við Manhattan síðan tökum við Berlín

María Rut said...

Æi takk Unnur og Dóra fyrir commentin ! Það væri hreinlega ekkert líf án örflugudansins ! En endilega verið duglegar að kíkja yfir jólin ætla að gera skemmtilegar tilraunir í Afríkunni (vei! ) og Haffi minnokkar tími mun koma í tjúttinu, þar stígum við skottís og ræl og sýnum þeim hvernig á að fara að þessu! Leonard Cohen er afar djúpur já.. djúpáll ? haha