Wednesday, December 21, 2005

bubbbeles

Í gær lá ég í sundlauginni hálfan daginn þar sem að ég og Churton vorum í stríði á móti littlu krökkunum (veit ekki afar þroskað) fórum svo í verslunarferð fyrir Lesley og var það frekar skrautleg för þar sem að ekkert var til í Shoprite, svo við fórum í Kisamente og þar fengum við allt sem við þurftum. Borðuðum svo heima hjá Lesley og Kristjáni en eftir það skunduðum ég og Churton á mömmu bíl á Bubbles sem er írskur pöbb. Þar var pílukvöld og faðir minn í essinu sinu, við fengum okkur drykki og svo var hann dreginn í það að vera memm og ég horfði á með Cherieese. Svo þegar allir voru búnir manaði pabbi mig og Churton íað spila við hann´og félaga hans og viti menn, við unnum ekki. Afar skemmtilegur dagur. Svo kom ég heim settist upp í stofu til mömmu og þá fór rafmagnið af öllu hverfinu í annað skipti þetta kvöldið, ég var svo smeyk því að ég er sú eina sem að sefur niðri að ég bað hana móður mína að koma og kúra með mér, eftir smá tregu þá játaðist hún því og við spjölluðum til að verða 3 í nótt. Var búin að ákveða að fara í golf með pabba í morgun en ég hafði sofið svo litið að ég fer bara seinna. Svo erum ég og Churton að fara að mana pabba í það að taka okkur í veiðiferð á vatnið, taka kleinuhringinn okkar með og láta hann draga okkur og fara í fallhlífarsvif!

En hvað er að frétta af ykkur víst það er aldrei neinn á msn þegar ég er inná ?

3 comments:

Anonymous said...

Er enginn á msn þegar þú ert inni?? Veit ekki betur nema það sért þú sem ert AWAY:))

Anonymous said...

ég var að tala við þig loksins:D vonandi hittumst við meira á! bara svo mikið að gera þessa dagana!:S

Anonymous said...

0mg ef París er í evrópu og grænland í eigu dannmörku en samt í ameríku landfræðilega séð og ég er heima hja mér, hvar er þá úganda?