Sögu-horn Maríu er nú að störfum og ætla ég að fjalla um uppruna rúðupissins.
Já rúðupiss ó rúðupiss, var væri maður án rúðupiss? Maður hefur jú ósjaldan lennt í því að það er hellirigning og forið rennur um rúðurnar og hvað er þá handhægt að nota þá ? jú jú auðvitað rúðupissið. Rúðupissið var uppgötvað af vísindamanninum Charles Iswolf árið 1974, hann bjó í Súdan, og þar var mikill leir og drulla sem settist á rúðuna sérstaklega þegar það rigndi sem var svona cirka einusinni á dag, Charles var orðinn frekar pirraður á þessu og ákvað að finna einhvern vökva sem myndi hjálpa honum að losna við drulluna af rúðunni. Hann settist niður í skrifstofu sinni og vann og vann svo mánuðum skipti, hann ætlaði að finna upp vökva sem myndi losa þetta frá, hann var búinn að strita í mánuði þegar hann loksins fann upp á því að prófa að láta gos í vélina og sprauta því á rúðurnar, hann prófaði þetta, og það endaði á því að gosið festist á rúðunni, þá tóku við nokkrir mánuðir í viðbót. Þangað til að einn sólskinsdag fann hann efnaformúluna fyrir vökvann sem hann þurfti, vökvinn var bláleitur.
Vökvi þessi fékk viðurnefnið "Rúðupiss" - sem er einkar tilviljunnarkennt sökum þess að það hljómar eins og að rúðan sé að pissa, en í raun og veru eru engin þvagfæri í henni, heldur eru þetta örmjó rör við rúðuna (einskonar gervi þvagfæri) sem að spíta upp vökvanum, segið svo að þið uppgötvið ekki alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi ? En Charles Iswolf varð ríkur maður af þessari uppgötvun og það hafa líklegast allir eitthverntíman þurft á því að halda. Lífsnauðsynlegt fyrirbæri ! Lengi lfii rúðupissið... svo dettur mér í hug þessa fínu vísu sem á vel við hér ;
Piss piss og pelamó
púðursykur og króna
þegar mér er mikið mál
þá pissa ég bara í skóna !
(blogg þetta birti ég þann 7.febrúar síðastliðinn)
4 comments:
Ég lærði þessa vísu í æsku, en ekki svona. Mig langar því til að koma á framfæri þeirri útgáfu sem mér var kennd svo hún varðveitist líka - enda mun eldri og væntanlega upprunalegri:
Piss piss í pelamál
púðursykur og króna.
Þegar mér er mikið mál
þá míg ég bara í skóna.
Í þessari útgáfu er hljóðstafasetningin réttari og merkingin skýrari t.d. í 1. ljóðlínu. Pelamál er mál sem mælir vökvamagn eins pela = 2,5 dl, en hvað er pelamó?
uss.. þú þarna gilitrutt! ekki rústa ljóðinu! mér finnst það flott svona!
þetta var mjög skemmtilegt og fræðandi hjá þér, takk fyrir að hafa deilt þessari visku þinni með okkur:D
ps þetta er ekki kaldhæðni:p
ups þetta var dagny rakst ovart í plús og enter:S:p
Post a Comment