Monday, November 07, 2005

Þráhyggja

,,Fjórir Norðmenn settu heimsmet í kvikmyndaglápi í dag en þeir sátu samfleytt í 70 klukkustundir og 33 mínútur í kvikmyndahúsi og horfðu á 38 kvikmyndir í röð.

Með þessari þrásetu á kvikmyndahúsbekkjunum bættu Norðmennirnir fjórir, þrír karlmenn og ein kona, gamla heimsmetið um 24 mínútur.

„Í morgun kastaði ég upp. Ég gat ekki komið neinu niður. Ég skalf og mér leið illa," sagði Mats Peder Nilsen, einn heimsmethafanna, við norska ríkisútvarpið, NRK, í dag.

Alls tóku 11 manns þátt í heimsmetstilrauninni en sjö sofnuðu í kvikmyndahúsinu. "

(www.mbl.is)

hahahahaha þá veit ég hvert mitt næsta lífstakmark verður !!!

3 comments:

Anonymous said...

vá, þetta fólk hefur svo ekkert að gera! ætli það hafi haft bleyjur á sér.. veistu hvort það mátti fá sér að borða og fara á klósettið' var þetta úti eða inni? voru þau i sömu fötunum og fóru i enga sturtu þarna á milli:S? sátu ´þau á sveitta rassinum allan daginn! innilokið í bíói?:(

Anonymous said...

Ég myndi nú mæla með einhverju öðru lífstakmarki. 41 dagur þangað til þú kemur til okkar. Erum byrjuð að telja niður.Ertu byrjuð að safna snjó til að taka með þér? Sakna þín og allur pakkinn....

Anonymous said...

varstu virkilega svona ofboðslega hugmyndasnauð maja mín að þú varst að setja sama bloggið tvisvar? fussumsvei :p