Var að koma úr kvikmyndahúsinu þar sem ég starði á einkar áhugaverða mynd um Mörgæsir og um lifnaðarhætti þeirra. Þetta er allt samant svo gífulega fjarri lagi að það hálfa væri nóg en svona lifa víst mörgæsir, afar tilgangslaust líf, þær labba í marga marga daga til þess að dansa mökunardans, verpa eggjum, skiptast á að halda egginu heitu á meðan að kvenkynsmörgæsin fer ,,ferðina miklu" og nær í mat í sjóinn, kyngir honum og þarf samt að vera komin í tæka tíð áður en að eggið brotnar og unginn kemur út til þess að æla matnum upp í ungann. En karldýrin eru öll saman og labba í hringi með eggin á milli fótanna til þess að frjósa ekki. Svo vegna þess að karldýrin eru ekki búin að borða í 3 mánuði sökum þess að þeir voru að fylgjast með egginu þá fara þeir að sjónum þegar að kvendýrið kemur og fá sér að borða, og svona gengur þetta, aftur og aftur.
Ég vildi bara deila því með ykkur kæru vinir að ég hef nú þegar pantað mér far á Suður-Heimskautslandið í leit nýrra ævintýra og ætla ég að aðlagast lifnaðarháttum mörgæsanna.
Enda eru mörgæsir ógeðslega kúl !
Fjandinn já !!
Svona er mökunardansinn mikli !
4 comments:
Mig langar að verða mörgæs! ;) :P Sounds like fun! :) ..Niii segi svona:) En þetta er kúl mynd!
Æ, hvað þú lifir spennandi lífi þarna í borg óttans.
Kveðja, pabbi
Ég hélt að mörgæsir væru bara svartar og hvítar.. Verða svona litabreytingar við mökunina? Ég kemst ekki í bíó svo ég get ekki séð þessa bíómynd fremur en aðrar...
Þetta eru engar venjulega mörgæsir þetta eru keisaramörgæsir !:)
Post a Comment