Saturday, November 12, 2005

Hjááááááááálp !!

Ég hef náð hátindinum (í aulaleika mínum)...

Eins og ég hef sagt áður þá er ég húkkt á Oreo kexi með hvítu kremi, guð má vita hvað ég hef stútað mörgum pökkum, langar helst ekki að vita það sjálf en þetta er orðið alvarlegt mál, í staðinn fyrir að borða einhverja hollustu fær ég mér Oreo kex, það sem verra er þá finnst mér það ekki einusinni gott lengur þetta er fíkn!

Svo gerðist það í morgun að ég eldaði mér þennan dýrindis hrísgrjónagraut, uppgötvaði svo að við ættum ekki rúsinur. Viti menn tók ég ekki til minna ráða og fór að brytja niður Oreo kex og lét það ofan í grautinn, ég hef náð botninum !

-Er ekki til einhver svona hóp theropíu dæmi fyrir fólk sem er háð Oreo kexi ?

6 comments:

Anonymous said...

æ,æ,æ greyið og ég sem keypti dökkt Oreo þegar þú komst vestur. Lofa að það verður ekkert Oreo á borðum hér næst þegar þú kemur. Ps. við eigum rúsínur.
Kv. pabbi

Klara said...

þetta er slæmt! mér finnst að þú eigir að stofna OA (Oreoholics Anonymous) samtök, og verða fræg athafnakona. Já!

Anonymous said...

Eru til stó ó ó ó ó ór Oreo kex?
Mér líst svo vel á þetta sælgæti að ég var að hugsa hvort ég ætti að rreyna að nálgast það fyrir jólin. Maður virðist sveiflast frá hæstum hæðum niður í botn yfir neislunni og það er einmitt það sem ég sækist eftir...

Anonymous said...

Ég get hjalpað þér með þetta, ég var líka fíkill.. ég reyndar var "húkkd" á með dökku súkkulaði, það sem ég gerði var að éta eins mikið og eg gat af þvi og þangað til að mig langaði ekki meira i.. og svo tók ég fyrir næsta skref.. og það var að ef eg ætlaði að fa mer oreokex þa þurfti eg að kaupa mer vejuleg oreokex og dýfa þeim sjálf í súkkulaði.. en ég gekk ekki svo langt sjalf, ég gafst upp fljótlega eftir að hafa hakkað i mig 2 pakka ein.. og eg gleymi ekki augnablikinu hvernig mer leið eftir á.. eitt orð til yfir það: OJ hehe svo að prófaðu þetta! ekki gleyma fötu og vatnsglasi..

Anonymous said...

Þetta er ekkert alvarlegt - ég lofa!!! Hef séð það verra :)

Anonymous said...

var samtekki gott að setja það útí grjónagraut? ;p haha mig langar að smakka:D