Mér þykir það einkar forvitinlegt að vita hvort að það hafi ekki farið uggur um littlu börnin í Kringlunni síðastliðinn föstudag þar sem þar örkuðu um jólasveinar í stígvélum og með stafi og allan pakkann ! Syngjandi hin þaulíslensku jólalög að hætti Ladda...
Það fór eilítill uggur um littlu Mæslu mús.
Að mínu viti eru jólasveinarnir ekki ennþá komnir til bygða ? Koma þeir ekki aðfaranótt 12.desember og þá einn í einu ?
Svona lagað hlýtur að rugla margan skrýlinn í ríminni. Að mínu mati eru þeir ekki alveg velkomnir strax en kannski erum við (að þeirra mati) Íslendingar svona ofur-skemmtileg þjóð! :) Hvur veit ...
Ekki misskilja þennan pistil á þann veg að ég sé arftaki the Grinch (enginn Vilhjálmu hér á verð h0h0) því að mínu mati eru jólasveinar algjröar kynjaverur ójá ... en leyfum desember samt að koma fyrst ! :)
6 comments:
Ég man nú þegar ég var lítið saklaust barn, gladdi mig fátt annað en hnöttótir rauðklæddir menn með hvítan skeggvöxt, búnir til að Coca Cola voru mættir galvaskir á alla mannfögnði frá miðjum nóvember og fram í janúar. Ég kvartaði ekki þá :)
En eins og skáldið sagði er ekki allur sinningur runnin til sjávar fyrr en munurinn á grúnki og sýnargjöftum hefur verið skeggræddur.
Ég finn æ betur hvað það gagnast mér vel að komast inn á bloggsíður unga fólksins. Ég skildi ekkert í því hvert þeir hefðu álpast drengirnir þarna á föstudaginn var þegar þeir hurfu og þóttust vera á æfingu! Það var eitthvað grunsamlegt á ferðinni. Nú hef ég sannanir og tek þá aldeilis á beinið þegar þeir koma heim í kvöld því þetta athæfi er ekki að mínu skapi...
hahaha maja mannstu eftir litlu börnunum sem voru að kalla á jólasveinabúningana fyrir utan mál og menningu um daginn? :p
hahaha nákvæmlega.. þetta eyðinleggur bara greyið börnin :(
æ ég er alveg sammála þér Maja mín. Finst að verslunar eigendur ættu að fara að sína Íslensku jólahefðunum þá virðingu að bíða með þessi leikrit fram yfir 12.des
HA LEIKRIT :O ??
Post a Comment