Friday, November 25, 2005

Haha þessar tjarnarsögur mínar ætla greinilega að fjölga sér....

... Var að labba heim úr skólanum með fullan poka af bakkelsi og kókó mjólk (Vó það er komið jólaþema á kókómjólkina) en ég var komin að miðri tjörninni er mér varð litið á önd eina, sem í klaufaskap eða eitthvað hafði tekist að frjósa við tjörnina þannig að þarna stóð hún á klakanum að reyna að komast í burtu en tókst það ekki sökum þess að hún var einfaldlega frosin við klakann. Littla skinnið, hvar var björgunarsveit andanna ? the duck rescue það er alaveganna til Björgunarsveit Kattanna en það er aðeins til Ættleiðingarstofa Andanna það er nú gott að vita :)

Ég á bágt með að viðurkenna það en mér fannst þetta nú alveg ægilega skondið og kætti þetta aðeins upp á daginn minn, þar sem að ég hafði verið í þremur prófum og yfirvofandi próf á morgun, fyrsta jólaprófið vei vei !
krossleggjið fingur fyrir Maju á morgun :)

5 comments:

Anonymous said...

maría rut!! aumingja öndin :(

María Rut said...

Ég veiit en þetta var samt fyndið á sinn hátt 8-) vil ekki hljóma eins og ég sé geðveikt ómannúðleg!

Anonymous said...

Hæ beibí! ... ég er endalaust sammála þér erum ekkert búnar að hittast nánast og líst vel á að við verðum duglegar eftir áramót! :) En annars, gangi þér sem allra best í prófunum (veit þú tekur þetta með trompi!). Heyri allavega í þér áður en þú ferð út elskan! :)

En haha er örflugudansinn bara að verða frægur ? finnst við ættum að taka upp myndband og selja það um allan heim og græða feeiiitt... 8-)

María Rut said...

óóóóóójá !!! :)

Anonymous said...

Mér finnst þú vera vond stelpa, myndir þú vilja að öndin myndi hlæja að þér ef þú værir að berjast fyrir þínu lífi? Neibs efast um það mín kæra vinkona. Endur hafa sál og þeim er mál og ég er stál en þú ert bara kál.