Amma liggur í sófanum og er að horfa á 24. Hún lifir sig frekar mikið inn í þáttinn að það er ógerlegt að flissa dátt (innra með sér) að henni. Hún er hérna alveg emjandi ,, nei, beygðu þig, passaðu þig á manninum" ..
.. Aldrei hef ég lifað mig inn í sjónvarpsþætti, fyrir utan Friends, og það er ekkert athugunarvert við það.
Aftur á móti var ég að uppgötva núna, að ég hef lifað árþúsundaskipti, og einnig flest allir sem skoða þetta (nema þá að þetta eru bráðgáfaðir krakkar fæddir 2000 + ) .
En það er heldur sérstakt ef maður spáir í því, því að seinustu árþúsundaskipti voru á milli áranna 0-1000 og ég (þið) lifðum árþúsundaskiptin 1000-2000. Þetta hafði aldrei hvarflað að mér áður og þykir mér þetta með eindæmum merkilegt því að börnin okkar munu ekki fá að upplifa þetta.
6 comments:
jahá! það er rétt... merkilegt!
En annars þá ætti ég nú bara að horfa á sjónvarpið með ömmu þinni, ég lifi mig líka svona inn í þættina... nema mér finnst 24 ekki skemmtilegir:P
Dö!
Þetta ver Hafdís bæðevei:)
Hafdís dö !
Né barnabörnin né barnabarnabörnin né barnabarnabarnabörnin.
My head is spinning already.
Hvað fékk þig til að hugsa um þetta heilum 5 árum eftir sjálf árþúsundaskiptin, kelli mín?
Segjum bara að ég sé seinfatta. En það er afur á móti mjög skondin útskýring á því og sagan af því verður geymd til betri tíma, sumsé kaffibolla í júní ?
Já elskan mín, þú ert nú sérstök:-) & segi ég það á góðan hátt... en eg mun ávallt elska þig :-)
Post a Comment