Kominn tími á smá blogg?
Ég nýt þeirrar blessunnar að fara stundum yfir á Flateyri til hinnar yndislegu móðurmömmu minnar, Jóhönnu. Hún er alveg stórkostlega sérstök og tók upp á því, að úr því að ég væri að fara að flytja suður og hefja sjálfstæðara líf, yrði ég að læra að elda.
Hún stóð við orð sín og kallaði á mig í gær í sósugerð. Ég lærði að búa til brúna sósu, en amma sá um kjötið. Kjötið var vont en uppbakaða sósan mín heppnaðist. 1-0 fyrir Maríu...
Í dag ætlaði hún hinsvegar að kenna mér að gera steiktan fisk. Ég var í þann mund að setja smjörlíkið á pönnuna þegar hún uppgötvaði að það væri ekki til neitt rasp, og hún nennti ekki út í sjoppu til að kaupa svoleiðis. Þannig að ég fann í frystinum ,,Chicago Town Tortillas" og ,,Microwave Rices" skellti því í örbylgjuna með mikilli list og bjargaði kvöldinu. Þar að leiðandi finnst mér að þetta sé núna komið í 2-0 fyrir mér.
Það verður mjög spennandi að fylgjast með morgundeginum. Mun amma klikka eða læri ég eitthvað nýtt... tjah maður spyr sig.
1 comment:
Hún amma þín gerir líka bestu sósu í heimi, þú gerir þér grein fyrir því þar sem ég hef aldrei náð þessari sósugerð þá verður þú að halda í hefðina og læra svo að þessi sósugerð glatist ekki. Þá er ég að meina fyrir komandi kynslóð. uhm :-). Notaðu tíman vel og lærðu af henni ömmu þinni.
Gaman að sjá loksins myndir af þér. Við getum ekki beðið með að þú komir til okkar. Kossar og knúsar til ykkar mömmu.
Post a Comment