Thursday, May 19, 2005

'89 árgerðin á Ísafirði, óargardýr !

Gerðum hið ógerlega í dag.

Við 10. bekkingar fórum í óvissuferð í dag til að fagna lok prófa. Ferð okkar var heitið inn í varnagarðinn á Flateyri þar sem við tók þvílíkur bardagaleikur. Efst í hlíðinni voru víkingarnir (við) og neðst voru landnemarnir, sitt hvort liðið fékk sér hönd flugelda-bombu, og átti höfðingjarnir í sitthvoru liðinu að finna sem ákjósalegastann felustað. Leikurinn gekk semsagt út á það hvort liðið yrði á undan að kveikja á flugeldanum. Eftir dágóðan múgæsing og bardaga og þó nokkru eftir að ég varð ,,lík" þá hleypur Hermann minn kæri vinur með eldspítur og flugeldann sér við hönd og kveikir í við mikinn fagnaðargalsa. Kemur drengurinn hlaupandi niður hlíðinna ánægður með verkið, og allir mjög ánægðir með það að geta loksins haldið ferðinni áfram. Þá heyrist í eitthverjum ,,hey er kviknað í þarna uppi" þá hafði flugeldinn sem sprakk frekar lágt, kveikt í sinu í miðjum varnagarðinum. Allir stóðu þarna og horfðu á eldinn blossa upp. ójá okkur tíundubekkingum hafði tekist hið ógerlega. Við kveiktum í varnagarðinum. Enda ber þess mjög bersýnilegt ummerki um það að við höfum verið á kreiki þar sem stór, svartur blettur nær yfir hálft útivistarsvæðið. Ég vil samt halda því fram að þarna muni spretta upp hið grænasta gras innan skams.

Annars er mjög fínt að vera búin að klára prófin og þá getur maður farið að íhuga önnur málefni. T.d Úganda ferð eftir þrjár vikur.

6 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með að vera búin með prófin Maja mín.

Anonymous said...

vá marr þið eruð klikk en ahh hvað það verður gaman að fara til danmerkur í 10 bekkjar ferð vonandi skemmtiði ykkur í BORGARFIRÐI

Anonymous said...

það er ekkert smá komment frá 10 manna bæ!!!!!!!!!

Klara said...

varnargarðurinn á flateyri? Hvílík óvissa!!!!

Anonymous said...

Mér finnst nú að þú ættir að fara að skrifa eitthvað, þögn í næstum því viku. Og hvar eu myndir.Við viljum að þú setjir inn myndasíðu og verðir duglega að taka myndir og setja inn. Sérstaklega af þér og ömmu.....Kærar kveðjur til allra. 20 dagar eftir. Hlökkum til að sjá þig.

María Rut said...

Been busy.. en ég skal bara redda þessu bráðlega