Þegar ég var lítil og saklaus (ekki það að ég sé ekki enn saklaus heldur er það staðreynd að ég hef hækkað um nó þokkra sentímetra) þá fekk ég stundum leyfi til þess að vera ,,lengi” úti til þess að klára að horfa á einhvern þátt eða eitthvað þannig heima hjá Söndru. Þegar það kom svo að því að skunda heim á leið, gekk ég einatt framhjá Vagninum (kráin á Flateyri) þar sem að það var hagstæðasta leiðin.
Það var ávalt húllumhæ á þeim bæ er ég gekk framhjá og hugsaði ég þá stundum með mér ,,ohh hvað ég hlakka til að verða 18. ára og fara á þennan stað” Var það eitt af æskumarkmiðum mínum, að fara á lókal pöbbinn, greinilega mjög metnaðargjarnt barn.
En núna þegar þetta nálgast óðfluga
Viti menn :
,,Enginn hefur tekið að sér rekstur skemmtistaðarins Vagnsins á Flateyri sem hefur verið lokaður frá byrjun júlí. „Það er ekkert að frétta af rekstrarmálum Vagnsins og ég tel nokkuð ljóst að staðurinn verði ekki opnaður aftur“, segir Friðfinnur Hjörtur Hinriksson sem hélt um stjórntaumana á Vagninum ásamt Grétari Erni Eiríkssyni og Haraldi Hjálmarssyni fyrrahluta árs. Vagninn hefur lengi vel verið eini skemmtistaðurinn á Flateyri. Þar hafa komið fram fjölmargir landsþekktir listamenn í bland við heimamenn og samkomur af ýmsu tagi verið haldnar. Þá segir Friðfinnur Hjörtur að félagsheimili staðarins sem verið er að endurgera um þessar mundir komi sterkt inn sem nýr samkomustaður. „Hópur áhugamanna vinnur nú að endurbótum á félagsheimilinu sem er að verða stórglæsilegt. Hugmyndin er að nýta það undir dansleikjahald og fleira. Ef húsið verður tilbúið býst ég við að fyrsta ballið verði haldið upp úr miðjum nóvember“, segir Friðfinnur.”
Tekið af www.bb.is
Þá fór eitt af mínum markmiðum í súginn. Þá er næsta markmið að leita af tilgangi lífsins....
....á ný..
5 comments:
Guð minn almáttugur, þetta er hörmung. Ég vorkenni hinum flateyrsku drykkjuáhugamönnum... nú þurfa þeir að fara alla leið til Ísafjarðar :o
Ég fann minn tilgang þegar ég var að klippa táneglurnar mínar um daginn. Ein tánöglin skoppaði undir sófann og ég leit undir og þar fann ég hann! Því miður er ég búinn að týna honum aftur :(
já, ég var einmitt á sama máli, þótt ég sé ekki frá flateyri. Ég hlakkaði mikið til að geta farið í road trip með þér til flateyrar og á sjómannadags-ball á vagninum. Það hefði verið svo geðveikt.
Ertu samt geim í koddaslaginn á næsta ári?
Hver veit, eða þá að við skundum í kararóðurinn ?? Er ekki alveg andlega tilbúin í svona brjálæði eins o0g koddaslagurinn er.. !
Jahérnahér....
Er félagsheimilið í alvöruinn að verða rosa flott?!?!?
p.s. ég sakna Vagnsins líka óendanlega mikið! Ég man líka eftir því að ég var búin að bíða í 6 ár eftir að komast á heimavistina í Hrafnagilsskóla... og viti menn.... hún var lögð niður þegar við mættum í unglingadeildina. Þvílíkt áfall! Ég held að ekkert okkar séum söm eftir þetta... :o)
Post a Comment