Í sumar, er ég sigldi um Níl með Hildi og Teit í ferðalaginu mikla sáum við þennan fyndnasta ferðamann allra tíma ! Fekk hann viðurnefnið ,,Jón Jónsson, landkönnuður" enda stendur hann alveg fyrir því nafni þar sem hann stóð í bátnum með kíki og fulgabók í rassvasanum þar sem stóð ,,Birds of East-Africa" Gerðum við stöðugt grín að honum þar sem hann stóð, einkar glaður yfir öllum fuglunum sem hann sá.
En nú ætla ég að koma að aðalatriðinu. Ég gekk, spök úr skólanum um daginn, og geng ég ávalt meðfram tjörninni, viti menn !! Var ekki bara hann Jón minn við tjörnina, líklegast að dást að fuglunum á tjörninni. Kunni samt ekki við það að heilsa upp á hann, og segja ,,hey you, I saw you in Uganda this summer, we were together sailing on Nile" þannig að ég gekk bara, rólega framhjá honum og hugsaði út í það hve lítil þessi veröld er eftir allt saman !
15 comments:
NEI! ég trúí þér ekki! :D haha þvílík snilld :p þú hefðir átt að tala við hann þarna...tsss slöpp! samt þvílíkt gaman að þessu:D
Ekki er þetta myndin af fuglamanninum?? Því mér finnst hann bara soldið kúl ;)
Þetta er fuglamaðurinn, Jón Jónsson, landkönnuður !
Fyndið...Vertu viss um það að ef þú ferð í ferð til Mývatns á næstunni þá verður hann Jón örugglega þar.
Heyrðu! Er þetta ekki Nonni Gold sem ég hitti á Hesteyri um verslunarmannahelgina?????
Hann er nú meiri karlinn, sagðist einmitt hafa verið að koma frá Afríku! :o)
Ertu ekki að grínast Vigdís ?? Maður veit aldrei þegar þú átt í hlut kæra vinkona :)
hæpæ;) hey hringdu í mig um leið ogþú sérð þetta... því eg næ engann veginn í þig.. hvar ertu maja?
Nei ég er ekki að grínast! Spurðu bara Lýð!!! ;o) Hann kallaði sig Nonna gull (gullmola) og varð alveg æginlega skotinn í Mörthu frá Bolungarvík......tók svona 200 myndir af henni og dóttur hennar.
Er þetta hann???
WHITE STRIPES!!!! amsterda míminn kemur aftur.. nema við verðum ekki étandi suddapizzur.. heldur horfandi á WHITE STRIPES..
vildi bara koma þessu á framfæri=)
"amsterdam tíminn".. hefði ég skrifað ef ég væri ekki með algjörlega uppþornuð augu af þessum helvítis linsum
Hehehe Magga lúði ! :D
Amsterdamtíminn var tími tímanna!!
NEEEEEEEEEEEIII!!! NÚ REITTIRU MIG TIL SÆRINDA!!!
Hví Patí hví ?
vááá ruuugl ruglsins:) heyrðu maja mín valak er málið aftur ! check it out. and i'll hear from u :*
Aha!
Búinn að komast að commenta leyndarmálinu!
Þú bloggar svo sjaldan!
Post a Comment