Ég var klukkuð. Skv. Leikreglum á ég að segja eitthvað tilgangslaust um sjálfa mig, að mér skilst...
1. Ég vaknaði klukkan 08:07 í morgun en mætti þó klukkan 08:15 í skólann. Vil ég fá viðurnefnið ,,Maja ljóshraði”
2. Það eina sem ég kann að elda er pizza (hituð í ofni), kakósúpa (í pakka), fiskibollur (í dós) og pulsur. – Ég veit þarf að gera eitthvað róttækt í þessum málum.
3. Ég drekk ekki kók. Diet pepsi er minn bandamaður!
4. Ég er sjúk í Oreo-kex í hvítu kremi. Banjãdas. Ólé
5. Í dag þegar ég var að labba í skólann var ég komin hálfa leið þegar ég uppgötvaði það að ég væri í krummafót. Tilgansleysa nr.1 útskýrir hversvegna.
-Ég klukka, Mömmu, Vigdísi Garðars, Dóra kút, Herdísi Mjöll og Dagnýju... mímímí
8 comments:
Jæja góða..............
1. Ég vaknaði kl. 8.08 í morgun og var mætt í vinnuna kl. 8.15!! Maja ljóshraði hvað?!?
2. Mér finnst ekki mjög gaman að tala í síma... verð að horfa framan í fólk þegar ég er að tala við það.....
3. Mér finnst rosalega gaman að horfa á raunveruleikaþætti, er eiginlega bara húkkt....
4. Mig langar alltaf í megrun en nenni því ekki..... hvað gerir maður í því?!?
Ég klukka Ernu Kára! (Set þetta á síðuna mína líka...)
væri ekki við hæfi að smella svona eins og einum link á hana dagnýju kellinguna í tilefni dagsins?
ekki það að það komi mér neitt við
Klara
jú það væri ef til vill vel við hæfi :)
Já vigdís :) Þar sem þú býrð þarna útí Úganda ´væri þá ekki upplagt að fara bara að svamla í sjónum?? taka nokkrar sundferðir. Það er mjög hollt og gott :) og upplagt þess vegna að nýta sér það svona í heitu löndunum.... getur svamlað í viktoríuvatni eða eikkað sniðugt :D
- en maja sjaumst á næstu helgi .:)
Vala kjáni þetta er Vigdís Garðars ekki Vigga mamma hahahah :D en já sjáumst pottþétt næstu helgi ! :D
vigdís og ekki vigdís... haha ! hlæðu bara ""
HAHA ég kannast við þessa rétti þína!! fékk nú alveg fylli mitt af þeim á tímabili og tengi það við Amsterdam:D
Mig dauuð langar að vita hver þessi ónefndi var fyrir framan:?
Post a Comment