Sunday, October 09, 2005

Jarðfræðiógópógó

Þar sem ég er ein í kotinu ákvað ég að vera svo væn við sjálfa mig og panta mér Domino's pizzu. Þess má geta að ég hef ekki ennþá bragðað á svoleiðis síðan ég flutti suður.

Hálftíma eftir pöntun fæ ég sms og þar stóð ,,hæ! Pizzan tín er ad leggja af stad til tín! Kvedja Domino's"

Þá sá ég fyrir mér littla pizzu, með nesti og nýja skó ganga út úr Domino's húsinu, komin út í þennan grimma heim, á vitum örlaganna, á leið heim til mín, gangandi.

-Þetta fannst mér einkar fyndið.

12 comments:

Anonymous said...

hahaha já get alveg seð það fyrir mér :p kemur svo pizzan og dinglar hjá þér!

María Rut said...

já hún gerði það reyndar :O

Klara said...

greyið litla
pizzan sko, ekki þú

Anonymous said...

Ég var klukkuð af henni dóttur minni og þá ber mér að segja eitthvað tilgangslaust um sjálfa mig. Það finnst mér reyndar frekar erfitt þar sem allt sem ég geri hefur tilgang. Ha ha ha !!
En ætla samt að reyna.....

1.Er ekki enn búin að sauma jóladagatalið, hef enn allan nóvember til að klára það !!
2.Kylfuberinn hans Bjarna er að byrja að kenna mér gólf í garðinum hjá mér. (Mér er greinilega ekki treyst á völlinn strax,skil ekki afhverju)
3.Helv. moskítóflugurnar láta mig ekki í friði.....
4.Ég fékk ekki skammarverðlaunin í Könustu á föstudaginn.(Smá fúl)
5.Fórum ekkert út um helgina, sem varð til þess að ég fór að taka til heima hjá mér. Það hef ég ekki gert í 6 mánuði.
Kærar kveðjur ástin mín. Hugsa til þín...

María Rut said...

Hvað fannst Jamillu um það ?

Flott klukk samt sem áður ;)

Anonymous said...

já alveg líkt þér að finna svona samúð með litlum pizzum! góðhjörtuð mannvera.. en jæja.. hlakka til að sjá þig hérna heima!!! sjáumst ljúfan=)

María Rut said...

Hlakka líka til að sjá þig Magga mín ! ;)

Anonymous said...

Váá.. hversu mikið hugmyndaflug þarf til þess að ímynda sér svona:D .. kannski ekki mikið , okei en þá er eg bara svona hugmyndasnauð! labbandi pizzur:p þú talar svo sannarlega einsog sannur vestfirðingur! (og fólk sem er að skoða síðuna hennar:D ekki halda að það seu ekki til pizzur á Vestfjörðum haha!) ég verð lengi að komast yfir þetta hja þer:D

Sjaumst á Ísafirði;) láttu vita hvenær þu verður komin( ég viet að þu kemur i dag, en veit ekki hvenær)

BLESS í BIIIILI(syngjandi)

María Rut said...

ÉG ER KOMIN !!!

Anonymous said...

mmmmm pizza.... ég er svangur.. :D en skemmtu þér vel þarna fyrir norðvestan.

Anonymous said...

Þetta finnst mér líka algjör snilld, ég sé þetta ljóslifandi fyrir mér!!! Æi greyið litla pizzan, alein úti í umferðinni........

Anonymous said...

ætli hún hafi verið með endurskinsmerki :S?