Tuesday, October 04, 2005

Hoppí polla...

SUS þingið var haldið um helgina á Stykkishólmi, þeim ágæta bæ. Kom seint föstudagskvöldið og mætti beint á fund með ráðherrum. Eftir þann fund rakst ég á gulldrengina Aron, Jónas og Dag Kára, mér til mikillrar ánægju. Átti ég gott spjall við þá drengi og var förin tekin á rúntinn að frádregnum Aroni og viðbættum Guðmundi. Þar á höfninni var stórt bjarg og efst á því var viti. Við gengum að vita örlaganna! Sú för var stutt en laggóð og því næst var förinni heitið á krá góða er ber nafnið Fimm fiskar. Þar var trúbador góður og mikil stemming. Eftir að kránni var lokað skunduðum við upp á hótel, þar var glamrað á gítar og sungið. Um fimmleytið skutlaði dýrlingurinn Jónas mér heim og svaf ég vært. Ég var staðráðin í því að vakna snemma og mæta klukkan 10 til þess að vera við ályktannirnar og lagabreytingarnar. Svaf aðeins yfir mig eða til eitt. En öll von var þó ekki úti. Lagabreytingarnar voru enn í gangi þegar ég kom - mér til ómældrar ánægju! Svo fór að síga á kvöldið og við skunduðum á kvöldmatinn. Maturinn var umdeildur en góður félagsskapur bætti þetta upp þannig að þetta kom út á sléttu. Svo var hörku ball um kvöldið, hljómsveitin var (einsog Aron sagði) ekki uppá Fimm fiska. En undir lokinn var maður drifinn af jakkafataklæddum mönnum á dansgólfið og það var stiginn dans. Sáust margir menn þar á gólfi með fádæma góða fimi í dansæfingum, sem dæmi má nefna var ,,maðurinn sem tapar aldrei" í góðu skapi og dansaði við ljúfa tóna hljómsveitarinnar (Sumir vita hvern ég er að tala um aðrir ekki) . Entist ég til hálf sex þar sem ég var komin í ruglið með fimm-aura við hann Pétur, það varð til þess að ég dreif mig heim, skynsamleg ákvörðun. Vaknaði svo og skundaði í kostningar. Borgar var kosinn í formann og Teitur, Heimir og Helga Kristín náðu kjöri í stjórn, klapp á bakið til þeirra! Aron, Jónas og Dagur Kári náðu kjöri í varastjórn, tvö klöpp á bakið til þeirra!
 
Þegar ég kom heim í gær beið mín íslensku heftið góða og uppljómunin um íslensku prófið sem var í dag. Viti menn settist mín niður, lærði í heilar tuttugu mínútur- á íslenskum tíma. Gafst svo upp og ákvað að læra bara daginn eftir. Lagðist svo í hinn ljúfa draumaheim. Vaknaði alltof seint og hafði þ.a.l ekki tíma til þess að læra og bölvaði því að hafa verið svona afar kærulaus. Allt kom fyrir ekki og ég held að mér hafi gengið alveg ágætlega- enda er skammarlegt að fá lægra en 5 í eigin móðurmáli.
 
Efast um að einhver nenni að lesa þetta. Ef svo er; Áfram þú !
 
Skund ek !

          

7 comments:

Anonymous said...

Vúhú! Ég fæ 2 klöpp á bakið!!! En já þessi helgi var frábær! Burtséð frá manninum sem tapar aldrei... Og matnum um kvöldið... Og ruglinu á fólkinu... Og hljómsveitinni... Og svefnleysinu... Og allskonar...

En þetta var samt _ýkt_ mötsj fönn!!!

Anonymous said...

rokkaðu, kvikindið þitt, rokkaðu!

-Klaraheitiég

Anonymous said...

ég nennti að lesa þetta :D gott að þú skemmtir þér um helgina :)
-en ertu búnað vera að hlusta á nýja sigurrós diskinn? hoppa í polla..!

Anonymous said...

Mæja það eru algjör forréttindi að þekkja þig mjög gaman. Takk fyrir 2 klöpp á bakið það er gaman. Á meðan þið fóruð á vit örlaga ykkar labbaði ég í ekki svo góðu ástandi meðfram sjónum að leita af krá :/ ( ég er alls ekki alki ) Gekk ágætlega þangað til ég viðurkenndi að ég væri týndur fann nunnu sem hjálpaði mér að rata( er ekki eitthvað rangt við það ?).

Ég svaf aldrei mikið yfir mig plús,minus 2 tímar frá þeim tíma sem átti að mæta :)

Anonymous said...

Hægri - vinstri; vinstri- hægri. Það væri gaman að vita hvað skilur að því þetta er ekki eins ljóst og það var í gamla daga. Er munur á lífssýn ungra hægri manna og ungra vinstri manna? Hugsa ungir hægri menn t.d. öðruvísi um leikreglur í samskiptum og viðskiptum en ungir vinstri menn? Ég er að velta þessu fyrir mér hérna í hellinum mínum...

María Rut said...

Já Gilitrutt, ósköp hlýtur þú að vera einmanna! :)

Tja ég veit ekki um vinstri menn. En ég efast um það að þetta hafi eitthvað breyst síðan í gamla daga.

Fyrir mína hönd veit ég það vel að ég trúi á einstaklings-, atvinnufrelsi, með hagsmuni allra að leiðarljósi.

Ungir vinstri menn vilja tryggja að allir séu jafnir og enginn má skara framúr..... Við (hægri sinnuðu) tryggjum jafnar aðstæður til að skara fram úr, en ekki jafna niðurstöðu eins og vinstri menn trúa á, þeir vilja hækka skatta á okkur og draga þar með úr möguleikum okkar til að ákveða sjálf hvernig við högum lífi okkar.

Tja vona að þetta hafi upplýst þig eilítið. En endilega kíktu á;

www.sus.is
eða www.vinstri.is

Anonymous said...

hey þú heittir bloggið þitt eftir sigur ros-ar lagi.. vissiru það María mín kæra!