Saturday, September 24, 2005

I want to see native dances

,,Ágætu þið. Mér er sönn ánægja að tilkynna ykkur að ég hef látið framleiða diskana Gull og Hörður Torfa´70 (Inniheldur fyrstu tvær plöturnar mínar.) Þessar plötur hafa verið ófáanlegar í nokkur ár en eru semsagt komnar í verslanir Skífunnar. Þessar plötur áttu að vera komnar fyrir hausttónleikana en eitthvað fór úrskeiðis. En þær eru semsagt komnar og það sem meira er ég hef gert samninga við Skífuna um að hafa alla fáanlega titla mína til sölu í verslunum þeirra, sérstaklega á Laugavegi. Síminn í þeirri verslun er 525 5040. Innan tíðar kemur svo diskurinn Þel og fer beint í verslanir. Ég get því miður ekki annað plötusölu í gegnum heimasíðuna mína lengur þar sem það útheimtir of mikin tíma og fyrirhöfn. Fleiri titlar af plötunum mínum sem hafa selst upp verða framleiddir og bráðlega kemur platan Tabu á geisladisk. Þið verðið látin vita.
Kær kveðja., Hörður Torfa.

Hörður Torfa
Heimasíða: www.hordurtorfa.com

Að gefa út geisladisk með eigin efni kostar mikla vinnu og mikla peninga. Afritið því ekki geisladiska það vegur að lífæð þess sem hefur tekjur sínar og lifibrauð af slíku starfi. "


-Getur einhver sagt mér hversvegna Hörður Torfa var að senda mér ímeil ? Ég stend á gati.


-Annars hin brjálaðasta bílferð til Íbizafjarðar að baki. Veðrið var óumræðanlegt. Snjór og bylur, sáum ekki að næsta túni get ég sagt ykkur. Svo keyrðum við framhjá húsi og ég var handviss um að það væri kviknað í því, því mér fannst ég sjá eld. Þannig að við snérum við, með þá hugmynd að sjá fólk útatað í ösku hlaupa vælandi út, en allt kom fyrir ekki og við komumst að því að það var víst bara kveikt ljós inn í húsinu, svona getur maður verið ruglaður stundum. Annars skundnuðum við okkar leið, og í djúpinu áorkuðum við það að klessa á eitt stykki kind. En hana sakaði ekki og hún vappaði sína leið, smá ullarmissir en það er bara hressandi svona þegar líða fer á veturinn.

Held því aftur á móti fram að hún hafi gert þetta viljandi, ábygginlega ekki gaman að vera kind núna, eða aldrei.

Ætla samt sem áður að fara að sofa núna.. endilega allir að kommenta.

-Biðst forláts á bloggleysinu. Internetið fór í verkfall heima.

7 comments:

Anonymous said...

Mig hefur alltaf Dreymt um að vera kind.....

Klara said...

hahaha
Ibizafjörður!

Anonymous said...

Internetið greinilega enn í verkfalli, vona að samningar fari að takast því að það er svo gaman að lesa bloggið hjá þér. Til hamingju með allt sem er að gerast í þínu lífi við hugsum stöðugt til þín..

Anonymous said...

Sæl

Anonymous said...

hæ gella;) long time no see... verðum að fara að hittast þar sem eru bara svona 40 min á milli okkar?? hvað varð um öll plönin okkar þegar við myndum báðar flytja.. haha:P svo ertu alveg hætt aðkoma inn á msn.. nema við förum kannski alltaf akkurat á sitthvorum tímanum inná:o..
miss you&callme!

Anonymous said...

Þú talaðir um að netið væri komið í lag svo..... hvar er bloggið ???

Anonymous said...

You have been klukked!!;) Skrifaðu nú eitthvað ónauðsynlegt um þig sæta mín ;) Annars, fín síða.. bið að heilsa :)