Vorum dregin í Gamla skóla og í I stofuna. Sátum öll saman inn í stofunni þokkalega á vitum örlagana. Það var magnþrungin stund. Svo fór Carmen Burnana að hljóða og túristar farnir að flykkjast að svæðinu. 6.bekkingar hófu gönguna, allir klæddir í tóga og löbbuðu afar hægt, skuggalega hægt. Við lágum öll í gluggakistunni, titrandi af ótta við þessar fígúrur. Svo í hátindi lagsins byrjuðu allt í einu allir að öskra, 6.bekkingarnir hlupu inn í Gamla skóla og 4. og 5. bekkingar hlupu í kringum skólan og öskruðu ,,drepa" og fleira, ég var svo upphífuð að ég man rosa lítið. Svo hlupu allir um skólann öskrandi, bankandi á hurðina og á meðan dundi eitt drungalegasta þungarokkslag sem til er. - Við settumst öll niður, þorðum ekki sökum hræðslu að standa. Sátum og biðum. Svo komu grýlur inn. Skipuðu okkur að standa upp á borð. Náði í ofurbusana og lét þá fá svínaeyru og nef. Í nafnakalli þurftum við að hrína, ein ákveðin stelpa hrein ekki nógu hátt og þurfti þar að leiðandi að standa uppá borði með svínanef og syngja Gádann - erfitt að hlægja ekki. Svo vorum við rekin út úr stofunni, látin labba einsog kóngulær niður að porti, og þar þurftum við að skríða í gegnum grýluhóp sem öskraði alls kyns skemmtilega hluti að manni, eftir þá svaðilför var ég tekin inn í hring af strákum og skipað að leika brauðrist og dansa stríðdans! Ég reyndi mitt besta. Svo var ég tekin út úr hringnum farið með mig að tolleringunni og ég var tolleruð. Eftir að ég kom niður á jörðina sögðu strákarnir sem tolleruðu ,,velkomin í MR, farðu upp í port og fáðu þér köku" Það glitti í bros á minni. Kakan var ljúffeng og góður dagur!
Svo tók fyrirpartýið við. Það var frábært ! Fólk í góðu stuði. Örkuðum svo á Broadway, eitt besta ball sem ég hef farið á hingað til ! Hreint út sagt magnað ! DJ. Páll Óskar alveg að standa fyrir sínu, ekkert vesen, allir vinir og mikið stuð ! Hitti rosa fínt fólk.
Svo eftir ballið ákvað ég að taka bara leigubíl heim. Ég var heldur betur ekki sú eina sem hugsaði svona, enda endaði ég á því að labba heim. Tók sinn tíma en hey ég sparaði pening ! Svo á ég til með að þakka samferðamanni mínum fyrir spjallið á leiðinni, eitt er víst ég hefði aldrei ratað heim án hans. Takk ! Ég var sumsé komin heim um 3 leitið. Var samt það heppin að vera í eyðu í fyrsta tíma þannig að ég gat sofið aðeins lengur en sumir, en ég vorkenni þeim algjörlega, hugur minn var örugglega hjá þeim á meðan ég svaf !
Takk kærlega fyrir mig...
7 comments:
carmina burana, ljósið mitt
kveðja
Klara málabrautarhrokakvendi
hey Maja. Ertu búin aðö láta Mílenu fá bolinn ??? Kv.vala
Það hefur greinilega verið fjör hjá ykkur fyrrverandi busum þennan ágæta septemberdag - og mikil lífsreynsla.Gaman að fá svona skemmtilega lýsingu á deginum.
Vala: Nei, ég sagði henni að ég væri með hann og hún sagði ,,uu ok" og ég.. já... á bara eftir að gera það.. :) geri það samt sem fyrst
ástardauði?
hvernig væri að fara að blogga ? Eg sit herna i makindum minum i tolvustofunni i natturufræði og helt að siðan þin hæti lyft mer upp en í staðinn velduru mér vonbrigðum :) Láttu ekki blekkjast og bloggaðu.. c-ya later
Sko... var bara fyrst að komast á netið núna :(
blogga núna ! kabúmm
Post a Comment