Thursday, September 01, 2005

Garpur? óneiseisei !

Minn fyrsti tjarnarhringur var hlupinn í dag, þetta er heldur betur erfiðara en ég ímyndaði mér! Það hefur líklegast hlakkað í aðillanum sem að setti saman stundarskránna mína, þar sem að íþróttir er fyrsti tíminn á miðvikudögum. Ekki beint freistandi að fara út í rigningu, ný vaknaður og að hlaupa 2 kílómetra, sérstaklega þar sem að ég gleymdi öllum íþróttabuxunum mínum fyrir vestan. En hún Binna bestaskinn lánaði mér þröngar buxur, sem voru nú ekki þær hlýjustu, er samt sem áður mjög þakklát fyrir lánið! Samt sem áður, í þröngum casall buxum, í peysu og hettupeysu og í anorakk með vetlinga.- gæti verið uppskrift af túrista á Íslandi ?

Þetta gekk samt skítsæmilega, fyrir utan dúndrandi hlaupasting og áreynslutitring allan daginn, hálsbólgu og harðsperrur. Þetta segir allt það sem segja þarf, nú ætlar María Rut í átak og ná þolinu aftur sem var endalaust í gamla daga. Og hanabanananú !

-þess má geta að Brynhildi tókst að draga mig í nammi og gos bindind, þetta mun vera í 9. skipti sem ég tek þessa róttæku ákvörðun og hver og einn dæmir fyrir sig um árangur minn í þessum efnum. Minn tími mun koma !


Þetta mun vera minn besti vinur í vetur, í storminum !

7 comments:

Anonymous said...

já, þu hefur viljastyrkinn.. djöfull öfundum við þig!

en sjáumst:) bæbæ

Klara said...

mig grunar einhvernveginn að í þínu tilfelli sé þetta því ekkert sérlega róttæk ákvörðun hmm

Anonymous said...

Kem ekki fyrr en 15. sept. Á ég kannski að senda þér joggingbuxurnar í pósti?
Gangi þér vel að hlaupa og nema fræðin í MR, elsku Maja.
Amma

María Rut said...

Klara, bara með efasemdir hægri vinstri ? og þú kallast vinkona, pff ! Hélt við ætluðum að vera buddys.. sjáumst í hádeginu í 10 11 á morgun ;)

Anonymous said...

Gaman að heyra að þú þurfir að hafa aðeins fyrir þessu....
Mamma

Anonymous said...

Finn til með þér.
Kv. pabbi

Anonymous said...

ég held að u endist í 1 viku í nammibindindu .. það er ekki hægt.. alltaf þegar ég reyni etta fer ég strax að hugsa svo mikið um nammi að ég fæ mér..:s:D