ójá, þið sem sitjið fyrir framan tölvuskjáinn, með kók í annarri og gulrætur í hinni, með gapandi augu sem mætti líkja við konu sem er ný búin að uppgötva það að maðurinn hennar sé samkynhneigður og var aðalnúmerið á gay-pride, þið sem trúið ekki ykkar eigin augum og haldið að þið séuð einfaldlega að dreyma þá er þetta rétt hjá ykkur og engar sjónvhverfingar í gangi....
já.. María er að blogga
Klara mín kæra er á svæðinu, þá er svo gaman að ég nenni ekki að blogga.
Átti svaka súrt augnablik heima hjá Gunnari Atla á föstudagsnóttinni, þegar við vorum nokkur að fá okkur að borða eftir ball og spjalla um daginn og veginn, þá barst smíðakennari í tal, og það að hann stundaði það að berja suma nemendur í smíðatíma. Þá stóðst ég ekki mátið og sagði ,, núnú voru það barsmíðar" mikið hlegið, mikið hlegið.
Uppgötvaði þáttaröðina ,,Cold Feet" á ný í nótt og horfði á heila seríu, geri aðrir betur.
1 comment:
Hæ elskan, þú kvittar hjá mér og ég hjá þér.......
Hef ekkert að segja því að ég var að tala við þig á MSN..
Kveðjur til allra.
Koss og knús
Mamma
Post a Comment