Friday, August 19, 2005

Stödd á Fjólugötunni...

Ég er maur.

Er sumsé komin í höfuðborgina. Líður einsog litlum maur í stórri þúfu, hermaur auðvitað. Þetta er minn fyrsti brottflutningur, hef búið í ein sextán ár á Flateyri. Ég er í langstökki -Flateyri-Reykjavík. En aftur á móti leynist mikil tilhlökkun inná milli kvíðans og óvissunar.

Skólasetningin er á mánudaginn újé. Ég er í 3-I með 14 stelpum og 11 strákum. Klara ást er samt búin að lofa að passa mig til að byrja með, svo ég týnist ekki í siðmenningunni.

Nóg í bili, heyrumst síðar eldhress.

-María Rut, tilvonandi menntskælingur

5 comments:

Anonymous said...

Hæ.
aría mín.

Leiðinlegt að geta ekki hvatt þig, áður en þú fórst frá Flateyri, í þínu fyrstu frægu för.
Við verðum báðar námmeyjar í vetur.
Hlakka til að sjá þig.
Amma þín var að sýna mér myndir frá Ugunda.
Hafðu það fínt, til hamingju með það óvænta.
Góða nótt mín kkæra Maja mús.

Anonymous said...

Við erum langstökkvarar núna!:)
flott blogg elskan!

Anonymous said...

Gott að vita að allt hafi gengið vel suður. 1.skrefið í stórum áfanga búið. Svo bara taka restina með stæl....
Við erum rosalega stolt af þér.
Ástarkveðjur Mamma

Anonymous said...

Jæja, þá kom að því að þú myndir flytja suður... og það útaf öðrum skóla pfff! ;)
En jæja, gott hjá þér að gera það sem þú vildir, en það er samt eins gott að þú gleymir okkur ekki, smaladrengjunum og vinnukonunum fyrir vestan, sem langar að sjá þig þegar þú ert í fríi =)
vertu dugleg að kíkja vestur... Við sjáumst, rústaðu MR!

Anonymous said...

Vona að fyrsti skóladagurinn verði farsæll. Við sönum þín hér í Aðalstrætinu.
Kv, Pabbi