Ég er komin á Ísafjörðinn góða. Fór í kvöld á tónleika með Hrafnasparki og sænkum gítarleikara að nafni Andreas. Hann var svei mér sænskur kallinn, með ljóst sleikt hár og í þröngum buxum, voða flottur. En þetta voru djass gítarleikarar, fá klapp á bakið frá mér.
Eftir tónleikana skruppum ég og Dóri félagi á Langa Manga. Hann fekk sér köku og kakó (sjaldséðir hvítir hrafnar hmm.....) og ég fekk mér vatn. Röltuðum aðeins um bæinn eftir kaffihússtopið og tókum svo uppá því að fara upp í fína herbergið heima og horfa á simpsons og Svínasúpuna. Þetta var hið indælasta kvöld. Mikið talað og hlegið.
Annars alveg yndislegt að vera komin Vestur og hitta alla. Alveg búið að vera frábært.
Er samt eitthvað rugluð eftir þetta blessaða ferðalag. Svaf víst til fimm, en hélt því staðfast fram að klukkan væri ellefu. Segi vitlaus orð við vitlausarsetningar og tímaskynið er ekkert. Gleymi að fá mér að borða, passa mig bara á því að gleyma sjálfri mér ekki á endanum ha?
Í dag var ég að stinga tölvunni minni í samband og spurði þá pabba hvort hann ætti gaffal eða eitthvað. Mamma fattar þennan.
Annars þá ætla ég að fara að sofa núna. Kveð að sinni kæru vinir.
8 comments:
Gaman að heyra að þér líði vel með að vera komin vestur. Við söknum þín all svakalega. Skemmtu þér svo vel með ömmu og Alexíu.
Mamma
Yyy .. gaffal ? Fatta ekki ! :S
ótrúlegt að þú sért komin heim.... ég kem á laugardaginn!
ó vei vei vei! eintóm gleði Klara,eintóm gleði !!! :)
Velkomin heim Maja mín! Nú er orðið langt síðan við höfum sést!!!!!!
Velkomin heim Maja mín! Nú er orðið langt síðan við höfum sést!!!!!!
já hvað kemur til ? Oftast hefur okkur tekist að hittast á hinum ótrúlegustu stöðum. Hvar er Strúlla ? Ég sjálf er í Holti að þjónusta göngugörpum.
maja farðu nu að koma aftur á ísafjörð, hefur bara gott af því. Þu ert að strita alltof mikið þarna. ertu ekki andlega þreytt á öllum uppvaskinum? :)
Post a Comment