Tuesday, July 26, 2005

Tívolí Tívolí Tívolílílí !

Já kæru landar. Ég fór í Tívolí í Úganda. Upphaflega og endanlega var þetta ,,Hildur's nd Teitur's day of fun" þar sem þau tóku okkur systkinin í Didi's world, amusement park, vei vei. Keyrðum í hálftíma í gegnum moldarhrak og fólksþyrpingu svo eftir nokkrar beygjur og múnderingar komum við loksins að stóru skilti þar stóð ,,welcome to DIDI'S world" þar keyrðum við inn, og það var alveg eins og að keyra inn í annan heim (eftir keyrsluna í týpísku afrísku umhverfi) borguðum okkur inn og fengum þessi dýrindis armbönd og hófum ævintýradaginn mikla. Þetta var voðalega krúttlegt og spes, þar sem landarnir misstu sig gjörsamlega í þessum þrem ,,fullorðins" tækjum (restin voru lestir og hringekjur fyrir börn.) Ég, Hildur og Teitur létum okkur ekki vanta inn í brjálæðinu og skunduðum í kolkrabban, klessubíló og sjóræningjaskipið mikla á meðan Júlía og Hörður dunduðu sér í lestunum og þvíumlíkum tækjum. Til að lýsa þessu svæði, þá var þetta allt malbikað, með fullt af littlum tækjum, öskrandi local fólki ( sem var að missa sig í gleðinni), svo voru u.þ.b 20 sölubásar í einni röð, en aðeins 2 voru í notkun, í einum var seldur ís og aðeins ís og í hinum var selt popp og aðeins popp. Greinilega vinsælt svæði fyrir kaupmenn, eða hitt þó heldur. En þarna áttum við æðislegan dag saman, og þrátt fyrir kaldhæðnina í mér er bara gaman að hafa upplifað það að hafa farið í Tivolí í Afríku og þetta er stærsti skemmtigarður í Afríku (fyrir utan Suður-Afríku auðvitað). - og hei Ísland er ekki einusinni með Tívolí ! :) p.s er búin að bæta inn myndum á myndasíðuna frá Svaðilförinni.




Afríkanarnir að missa sig í tivolíinu, þetta er bátur fullur af local fólki

Ég í kolkrabbanum, vei vei vei

5 comments:

Anonymous said...

Maja mín, rifjaðist ekki upp eitthvað af þínum gömlu góðu Tívolí- og Lególand dögum sem við áttum saman 1998? Það sést á myndunum að þið hafið öll skemmt ykkur ljómandi vel - og það er nú gott...
þín amma

Anonymous said...

Er ekki tívoli í Smáralindini, lol. Maja það væri fínt að setja inn nýja flokka þegar þú bætir við myndum, annars verður maður að skrolla í gegnum alt albúmið til að sjá viðbæturnar. Tekur langan tíma fyrir þá sem hafa ekki Adsl.
Kveðja, pabbi

María Rut said...

ohh, en tekur það ekkert meira pláss? Já ég þarf að vinna í því í bráð.

Anonymous said...

HI maja :) við erum að fara leggja í hann eftir smástund.....sirka halftimi.. við dúna og lára skundum í Leifstod og ferdinni heitid til Mallorca..... ;););) skemmtu þér í afríkunni ohg hittumst svo þegar eg kem heim :*:*:*

Klara said...

það tekur einmitt minna pláss þar sem meira skipulag er á því!
(hefur þú aldrei tekið til í herberginu þínu, kona!?!?)
Þetta er samt satt