Monday, July 18, 2005

Rottulíf....

Ég ætla nú bara að blogga sérstaklega til þess að botna í einu af commentunum sem ég fékk í seinustu færslu en hún hljóðar svo :

,,Maja! ég var ekki að meina það sem ég sagði áfram með að mottóið væri fallið úr gildi! það er ALLTAF í gildi - mundu það:) þetta var bara augnablikshrifning yfir því að maðurinn þinn gæti verið jafn ógiðslega ríkur og þessu gaur! " - Strúlla

.... Ég botna hvorki upp né niður, hægri eða vinstri hvað þú ert að tala um elsku Strúlla mín.... og vil ég vinsamlegast biðja þig að útskýra þetta aðeins fyrir mér ? Ertu viss um að þú hafir verið að skrifa á réttri síðu :) Kostuleg....

Annars verður þetta enn ein sektarkenndarbloggfærslan = ég að blogga um ekkert merkilegt og fljótfærnin alveg í hámarki !

Gámurinn kominn. Vil ég ekki minnast einu orði um hann þar sem ég er komin með óbeit á þessu orði.

Sátum í allt kvöld og spiluðum mattador. Frábært spil, sérstaklega þegar maður er ríkur og eignamikill ! Enda endaði þetta með einhliða sigri Maríu.

Það er rotta í eldhúsinu. Ég er ekki hrifin af rottum. Þær eru ógeðfelldar, og minna þær mig á eitthverja teiknimynd þegar ég var lítil, man ekki alveg hvaða mynd það var en þar voru allaveganna vondar rottur. Tindátinn staðfasti? Æi ætla ekki að reyna við þetta. En ég er sumsé hérna heima hjá Kristjáni frænda og á að koma með rottueitur á leiðinni heim, við erum búin að prufa allt ,,siðlegt" svosem einfaldar músagildrur og annað slíkt.

Verð að skunda heim núna... klukkan orðin 01:00 og tími til að láta sig detta inní lestrar-og tónlistarheiminn minn. Ahh ljúfasti heimur í heimi ! :)

6 comments:

Anonymous said...

Já svo sannarlega hinn ljúfasti af öllum heimunum sem ég þekki:)

og oj... rottur! Ég heyrði það frá góðum manni sem kynntist holræsum Ísafjarðar nauðugur eftir skolplagnavandamál í húsinu hans að rotturnar í holræsum Ísafjarðar eru hárlausar og bleikar! OJ:p ég vil ekki hitta þær... en mig langar samt að sjá rottu... bara til að vera búin að því;)

Anonymous said...

,,Betra er autt rúm en illa skipað"

Klara said...

hihihi
heimur í heimi
þeir eru bestir

María Rut said...

Strúlla, en hvaða augnablikshrifning var þetta í mér ?

ahh já ertu að tala um strákinn sem ,,á" Kampala ?

Anonymous said...

úff ég vorkenni þér Maja!! ég get varla séð mús án þess að það líði yfir mig, hvað þá rottu! :|

Anonymous said...

JÁ!!!! Þarna kom það :):):):)