Kvöldið. Í dag ... haha nei nú ætla ég heldur betur að skunda af leiðinlegum ávana hér í Úganda. Ég ætla ekki að tala um viðburði dagsins eða Afríku, heldur ætla ég að skella mér á Frónið og hugleiða - hugur minn sem opin bók.
Í dag, eftir að ég vaknaði og þangað til að ég stóð við búðarkassan í Shoprite var ég í stanslausum hugleiðingum, fekk meiraðsegja nokkrar athugasemdir frá föður mínum hvort allt væri í lagi, ekki panikka, ég var í lagi, ég var bara að hugsa.
- Þannig er mál með vexti að ég fór að spá í því hversu furðulegar málvenjur Íslendinga geta orðið. Byrjaði upphaflega að spá í þessu þegar að Lilja kom með það comment að Tony segir oft ,,sausage" við son sinn sem þýðir pulsa og enginn á Íslandi myndi segja ,,komdu hingað puslan mín." En aftur á móti erum við alls ekki skömminni skárri heyrir maður ótt og títt sagt ,,þú ert svo mikil rúsína" - rúsínur eru krumpaðar, brúnar og alls ekki sætar/krúttlegar/fallegar, sama gildir um sveskjur. Svo er oft sagt ,,þú ert svo mikil dúlla" - Dúlla er heklumunstur, allaveganna lærði ég það í fyrsta og eina skiptið þegar ég var í handmennt (haha Vigdís). Hversu hugljúft er að segja við eitthvern ,, ahh þú ert svo mikið heklumunstur" nei ég held ekki. Svo var einusinni tíska að segja (meðal annars notaði ég þetta óspart á gelgjunni) ,,æi múslíið þitt" - ég borða múslí í morgunmat. Annað sem skaust yfir hugleiðsluna mína er það að við áköllum guð og jesú í ólíklegustu atvikum. Þegar okkur bregður gífulega eða erum hneiksluð á eitthverju æpum við í háa C ,,jesús" - hvað á Jesú að gera? Eins þegar eitthvað merkilegt gerist þá segjum við í a-moll ,,Guð minn góður" - hann er góður já... en enn og aftur hvað á hann að gera?, en ég álykta að þetta sé eitthver siður síðan í gamla daga, tengist líklegast hnerri og ,,guð hjálpi þér" sögunni.
Meira um það sem ég spái í seinna, kanski að ég tali um tilgang lífsins hver veit?
Annars er stefnan tekin á Safari á morgun, og mun ég eyða verslunnarmannahelginni í siglingu á Níl, og Safarí, hver veit kanski endar maður í Kalangala ? Vona að þið eigið góða helgi, óneitanlega langar mig að vera heima í lopapeysu og í útileigu, en það bíður bara betri tíma.
Hver man ekki eftir ömmuskónum góðu sem slógu eftirminnilega í gegn í vor??
9 comments:
öhh... ekki ég....
slógu þeir í gegn segirðu?
Æi dúllan mín! Þú ert engu lagi lík!!! :o) Bið að heilsa.
Klara: Skórnir voru megaflottir. Fann þá í skóhillunni heima hjá ömmu Jóhönnu, þeir voru notaðir mestmegnis í garðvinnu og berjatýnslu og ég breytti örlögum þeirra og fór í þeim út, tók þá með mér á Ísafjörð í göngutúra og á Flateyri, og var eindregið hlegið að mér sökum fáránleika. Mér var sama, mér fannst ég kúl !
Vigdís: Samt.. hvernig lag er ég ? er ég rokklag eða ballaða eða hvað ?
Haha! Ég rakst á þig á göngu þinni í þessum ömmuskóm ! Mér fannst þeir ekki asnalegir, mér fannst þú kúl !;)
þeir eru dásamlega sundlaugavarðalegir
vei vei vei ég er kúl ! En já Klara þeir eru svolítið þannig, kanski að ég múti ömmu og taki þá suður þannig að ég get verið ótrúlega kúl í MR !
Fór eitthvað fram hjá mér? Hvað er þetta Kalangala?
Þú munt erfa skóna, Maja mín. Og mátt taka út það erfðagóss strax ef þú vilt og fara með það suður ef þú vilt...
amma
Kalangala er eyja á vatninu, einsog paradís á jörðu niðri get ég sagt þér, en við förum ekki, við förum víst um jólin er mér sagt, og þá getur þú komið með ! :) En já, vá takk amma þú ert best ! Sjáumst eftir viku :)
Maja mín. Þú ert einhvers konar hippadiskóballada með rokkáhrifum! Sátt við það??? :o)
Heyrðu! Ertu sem sagt að koma heim á klakann aftur? Það væri gaman að fá að sjá þig! Habbbðu það gott og knúsaðu liðið frá mér. ;o)
p.s. skórnir eru baaara æði!
Post a Comment