Monday, July 11, 2005

letilíf letilíf ekkert nema letilíf

Dagurinn í dag var tileinkaður Halldóri Kiljan Laxnes, heiðraði ég hann með því að taka upp bókina sem hefur verið minn besti vinur seinustu vikuna, hálfgerður doðrantur ef ég á að vera sannsögul. En ég byrjaði lestrar-maraþonið á hádegi og leit ekki upp frá bókinni fyrr en um sex leitið og þá hafði ég afrekað heilar 150 blaðsíður, tel þetta vera mjög hollt svona einusinni í mánuði. Mun nú héðan í frá mun 11.júlí verða hinn árlegi og stórmerkilegi Halldórs Laxness dagur í mínum augum allaveganna, vegna þess að það var dagurinn þar sem ég uppgötvaði hversu stórmerkilegt skáld hann var/er. Þessi bók atarna sem ég er sumsé að lesa kallast ,,Salka Valka" og lifi ég mig alveg innilega inn í hana útfrá sögunum sem María langamma mín deildi með mér, af henni í littla fiskiþorpinu. Amma hefði kanski getað verið Salka Valka(fyrir utan frelsuðu mömmuna, fátæktina, fiskivinnuna, buxunar) og þó.... Þær voru líklegast mjög ósvipaðar þar sem afi ömmu var kaupmaður.
Aftur á móti var byggðarlagið á Flateyri forðum svipað og á Óseyri. Sögurnar sem amma dældi ofan í mig forðum, endurspegla þessa fábrotnu lifnaðarhætti nokkuð vel.
Ég sjálf sé það að þó þetta sé mín fyrsta Halldórs Laxsness reynsla, verður þetta bókað ekki sú seinasta.
Líka má til gamans geta að Halldór Kiljan var giftur frænku minni Auði Laxness, kanski að ég finni mig svona í bókinni þessvegna ?

Ég hef verið að finna mig í bókmenntunum þetta sumarið, og hef ég afrekað heilar þrjár bækur, það þykir mér nokkuð gott miðað við byrjanda. Ég byrjaði á ,,Fólkið í Kjallaranum" eftir afabarn Halldórs Laxness, Auði Jónsdóttur, tilviljun... held ekki ? svo snéri ég mér að ,,Hugsjónardruslan" eftir Eirík Norðdahl, en það var víst skyldulesning sumarsins að sögn föðurs míns og spússu þar sem að rithöfundurinn er bróðir Dóru, hún var nokkuð góð. Svo tók Salvör Valgerður við og það hressilega.
Ég hef ekki sagt mitt síðasta í bókmenntum, er bara rétt að byrja.

Var samt hálf slöpp í dag, vaknaði við hringinu um 11 leitið í dag, þá var ég reyndar búin að lofa Aaron að koma og hitta krakkana í Blue Mango í dag. Ég rankaði við mér, svaraði og kvaðst bara hvorki hafa heilsu né orku til að fara, það var reyndar bara lygi- var búin að plana að lesa, mun samt kíkja eitthvað um helgina úr því að allir eru að fara. Samt svolítið sorglegt að hafna félagsskap fyrir bók. En svona er ég bara.

Sakna allra á fróni og takk kærlega fyrir commentin sem ég hef verið að fá, þykir einkar vænt um þau.

14 comments:

Anonymous said...

Flott hjá þér að taka lestrarmaraþon Maja mín! Salka Valka er líka uppáhaldsbókin mín eftir Halldór Laxnes, frábær bók.
Hafðu það gott! Kossar og knús!!!

Anonymous said...

Hæ María mín þú ert alltaf jafn háfleyg og fleygorðuð! Svo er ég einkar stolt af þér að hafa lesið Hugsjónadrusluna eftir Eirík frænda:) Ég er einmitt á höttum eftir því snilldarverki , og svo er það bara að sökkva sér í Drusluna! En Maja mín ég sakna þín alveg gífurlega mikið,get ekki lýst því hversu mikið ég hlakka til að sjá þig næst! Svo fáum við kanski bara páska-PartýPleisið aftur í Ágúst! Það verður nú aldeilis slett úr klaufunum þá skal ég segja þér! Löbbum þarna um naktar bara allann daginn og "gleymum" því að sturta niður! Heyrðu þeta er gengið útí einhverja vitleysu hjá mér annig að ég ætla bara að enda þetta með því að segja að ég elska þig og sakna þín! Bleee;)

María Rut said...

Já Herdís, fremjum það ódæðisverk að gleyma því að sturta niður ! Hversu djarfar ætlum við að verða?

Þetta kalla ég ,, living on the edge" úff áhættusamar stúlkur hér á ferð.

Sakna þín meira.

Anonymous said...

Hæbbbb! Er stanslaust gæjastand á þér????

María Rut said...

halló ! Neinei alls ekki... er alltaf svo þæg og góð einsog þú veist !! :D

Anonymous said...

Elsku Maja mín
Ég er núna loks að lesa bloggið þitt. Er auðvitað "einkar" ánægð með árangur þinn í lestri alvörubókmennta. Vona að þér takist að ljúka við Sölku - og svo ótalmörgum öðrum góðum bókum í framhaldinu. Gott veður hér loksins og arfinn bíður mín úti í beði...
þín amma á Flateyri

Anonymous said...

Við erum farin að bíða þín hér og þú ert skikkuð til að koma á Ísafjörð undir eins, þú verður að fara hætta þessum afríkubúingum góða.. Bið að heilsa, gangi þer vel í sem dómari!
- pati

Klara said...

Þú þarft að lána mér þetta við tækifæri.
Ég er slæmur kommentari ;)
ást

Anonymous said...

Ert þú fyrrv. hans GunnA?? :)
-HV

Anonymous said...

Til lukku með að hafa fundið þinn ynnri bókaorm:) Ég fann mig líka mjög vel í Sölku Völku en þó var Halldór ekki gifur frænku minni... en hver veit? Ísland er afar lítið og aldrei að vita hvort ekki finnist einhver bönd á milli mín og Halldórs önnur en ást mín á góðum bókmenntum:)

María Rut said...

HV- Já það er ég.. :)

Amma - takk kærlega fyrir bloggið, get sagt það með sanni núna að ég hef lokið við bókina enda stritaði ég til klukkan 3 í nótt, sakna þín, knús!

Patí - ég mun koma um leið og ég kem til landsins, hlakka ekkert smá til að hitta ykkur allar !

Klara - Já það mun ég gera í skiptum við gibba gibb, Shins, The Smiths, Múm, Kings of convinience, Sufjan Stevens og allt það sem þú hefur dælt í mig. Hefur gjörsamlega bjargað mér og Múm hefur fylgt mér með Sölku Völku !
-sakna þín ást !

Hafdís - takk fyrir commentið, þú ert náttúrulega afar fáguð í þínu vali á listafólki sumsé Lizt, en mundu það er enn von, okkar takmarki mun vera náð, fyrr eða síðar. !

- takk öll fyrir commentin, ég mun blogga bráðlega... gámurinn er kominn !

Anonymous said...

úff já:) þu ert afar lunkin við að halda mér við efnið mín kæra María. Ég held fílelfd áfram í átt að mína takmarki;) Minn tími mun koma!

Anonymous said...

..sniðugt að svara svona commentum öllum í einu..

María Rut said...

amm ég er svo sniðug sjáðu til :D