Saturday, July 09, 2005

kalangalalallaa

Komið öll sæl og blessuð kæru landar ! Héðan er allt flott að frétta. Fór í lífsháskaför um daginn, hitti strákana Spencer, Charlie, Aaron og Nadim og Blue Mango. Ákváðum þá að labba til Spencers staðinn fyrir að taka boda boda. Vorum einu muzungu-arnir á svæðinu. Svolítið skondið því að maður sá greinilega muninn á hvíta fólkinu og svarta, því að við löbbuðum á miðjum veginum einsog við ættum hann, en ef að við (hvítíngjarnir) myndum sjá local fólk gera slíkt hið sama þá myndum við bölva því bak og fyrir. Já gott fólk. Við höldum að við eigum heiminn. En svo hringdum við í bílstjóran hanns Spencers, báðum hann um að fara með okkur heim til Charlies. Gerðum það. Þar fengum við okkur pizzu og kók, spiluðum biljarð, horfðum á video, fórum út í rughby og skemmtum okkur konunglega. Svo kom að því, ég fór aðeins að spá í það hvernig ég ætti að fara heim. Hringi í pabba, blaðra um eitthvað safn sem er nálægt og hann kveðst ekkert vita um þetta safn þannig að ég vissi ekkert hvernig við myndum fara heim. Þá datt charlie í hug að við myndum fara uppí Kisamente og taka leigubíl þaðan. Við lögðum í þessa miklu för, löbbuðum uppí Kisamente sem tók svona cirka 20 mínútur, þar voru innifalið: dauðir hundar, betlarar, börn öskarndi á eftir okkur ,,muzungus muzungus" börn hlaupandi a eftir okkur, leiðandi okkur, bílar sem stoppuðu til að rífa kjaft, fólk þreifandi á hárinu á mér og margt fleira. En eftir þessa miklu háskaför. Kom minn kæri faðir að sækja mig þannig að ég þurfti ekki að fara með strákunum á boda boda sem er vélarbrask, svokallað mótórhjól (ef svo má kallast) sem maður leigir, einskonar leigubílar... Maja is living on the edge!

verð að hætta núna.. klukkan orðin mikið, sumir vilja eflaust fara að sofa í friði frá pikk hljóðunum í tölvunni..lofa fersku bloggi á morgun !

6 comments:

Anonymous said...

vá það er bara ekki annað;) þvílikt líf þarna sem þú lifir í afríku:) get bara ekki sagt annað! ég held að ég þurfi orðabók til að skilja helminginn af því sem þu ert að skrifa herna hehe;)en er þessi spencer eikka ríkur?:D"En svo hringdum við í bílstjóran hanns Spencers," haha en allavega bara að spá;) en allavega maður saknar þín alveg svakalega mikið:) hlakka til að sjá þig 6-7.ágúst;) kemur beint vestur unga dama!allavega ætlaði bara að kasta á þig kveðju;) heyri í þér .. bæbæ:*:)

Anonymous said...

hey beib;) er einmitt að tala við þig símann;* sæta skvísa

Anonymous said...

Bara stuð og ævintýri á hverjum degi, gamann að þú skemmtir þér vel. kv. pabbi

Anonymous said...

Elsku krúttið mitt! Ég er búin að reyna svo oft að skrifa á síðuna þína en ég fattaði aldrei þetta með lykilorðið og það....ég veit samt að þú skilur mig, við erum nú einu sinni saman í ljóskuvinafélaginu!!! Takk fyrir að skrifa í gestabókina mína, frábært að heyra frá þér! Haltu áfram að njóta lífsins í Úganda, þú átt það skilið eftir frábæra frammistöðu á samræmdu prófunum! Bið að heilsa öllum og knúsaðu Hödda og Júlíu frá mér! :o)
Saknaðarkveðja, Vigdís.

Anonymous said...

Heyrðu góða!!!! Viltu samt passa þig og koma heil heim til Íslands takk fyrir kærlega!!!

:o)

Anonymous said...

hæhæ , flott síða ;) vonandi skemmtiru þér vel þarna og bara hlakka til að sjá þig:D