Monday, July 04, 2005

busy weekend !

Helgin er búin að vera vægast sagt viðburðarík.

Byrjaði á því á föstudaginn að vera dómari í sundmóti í Kabira, það gekk ágætlega nema hvað að ég bjóst ekki við sól og hita því að hina dagana sem ég hafði verið að dæma var rigning og leiðindi þanig að ég ákvað að vera sniðug og klæða mig vel, en þá kom einmitt þetta fínasta veður og Maja var í hitakófi, en reddaði því auðvitað með því að vera bara á hlírabolnum og brenna á bakinu!

Svo um eftirmiðdaginn skundaði ég í Squash með mömmu, Hildi og Teit. Þetta er lúmskt erfið íþrótt þar sem að ég var allaveganna dauð eftir þetta, ligg núna á mánudagsmorgni með harðsperrur og emja. En ég er til í slaginn þrátt fyrir það. Í miðjum leik við mömmu hringdi Keagan í mig og spurði mig hvort e´g væri til í að koma út um kvöldið, Spencer var reyndar búinn að biðja mig líka og þar að leiðandi hélt ég að ég væri í klemmu, allt kom fyrir ekki og þeir ætluðu hvort sem er að vera saman um kvöldið þannig að ég sló tvær flugur í einu höggi, dreif mig heim í bað og út í Garden City, þar sem við hittum Charlie og eitthverja ,,chetto" gaura sem heilsuðu mér allir með því að faðma mig, ég, Íslendingurinn sjálfur rétti bara út höndina og heilsaði að íslenskum og kuldalegum sið. Eftir að hafa hangið uppá þaki í nokkurn tíma með fullt af krökkum ákváðum ég, Spencer, Keagan og Charlie að skella okkur í keilu. Það fylgdu með eitthverjar ,,grúppíur" Charlies og Spencers. Ég grúttapaði í keilu, en það er bara gaman :)
Svo skunduðum við í bíó, á myndina ,,War of the worlds" (þar sem ég var í minnihluta fékk ég ekki að fara á eitthverja stelpu mynd) En þetta var ágæt mynd, samt svolítið asnaleg en við gerðum bara hið besta útur þessu. Svo eftir myndina ætluðum við í hraðbanka til þess að geta fengið okkur eitthvað að borða. Allt kom fyrir ekki og það var ekki til neinn peningur í hraðbankanum, tja já Afríka getur verið skondin. Þannig að við urðum bara að bíta í það súra epli að fá okkur ekkert að borða og bíða til betri tíma þangað til að það kemur peningur í hraðbankann, ég held að það sé ekki ennþá kominn peningur í hraðbankan, svolítið asnalegt að bjóða uppá þessa frábæru þjónustu, en hafa samt ekki pening í bankanum, en nóg um það.
Svo spurði Spencer mig hvort ég vildi koma með honum og félögum hans á fjórhjól, ég hugsaði mig um, en svo kom það í ljós að bílstjórinn var veikru þannig að ég fór ekki í þetta sinn.

Þá bauð hann me´r að koma með sér í teiti til Aarons. Ég var næstum því að fara með honum í það. En þá kom það í ljós að það ditchuðu allir teitið þannig að ég hélt mig bara heima, samt hringdi Spencer í mig og spurði mig hvort ég hefði farið því að Aaron var að ljúga að öllum að ég hefði komið. sorglegt.

Næsta dag, s.s á laugardeginum fór ég í predicure og klippingu með mömmu og Lilju, voða fínt að láta stjana svona við sig. Eðal.

Jæjja ég verð að skunda, er að fara að dæma á sundmóti núna klukkan 10.

Bið að heilsa öllum.

p.s er búin að setja inn eitthverjar 5 myndir á www.photos.heremy.com/majarut ekkert merkilegt, en ég á eftir að setja helling þegar það kemur betri tími og GÁMURINN kemur. úff... orðin þreytt á þessari setningu ,,þegar gámurinn kemur" eða ,,nei, það er í gámnum" Enda lifum við krakkarnir á play station. veit, sorglegt en satt.

3 comments:

Anonymous said...

5 myndir æ er búinn að leita af restinni um alla síðu.
Kv. pabbi

Anonymous said...

Úff, það er búið að vera erfitt að vera svona lengi án þín. Er búin að sakna þín alveg fáránlega. :( En gaman að sjá hvað það er skemmtilegt hjá þér María mín. :* Þessi gámur verður að fara að koma! Ég verð að fara að tala við þig! Er ekki alveg að ná því að tala saman svona í gegnum comment og hef reyndar ekkert verið neitt dugleg við það. En bara svo þú vitir þá hlakka ég líka til að gámurinn komi loksins þarna til þín. ;)

Anonymous said...

28 dagar í að þú komir til landsins. Heilir 29 í að þú komir til okkar! Púffh! Of langt. Herdís ætlar að vera hjá okkur í sumar, en okkur vantar þig líka.
Njóttu hvers dags
Kveðja að heiman.
Dóra