Monday, April 11, 2005

Tilgangslaus æska ?

Ég sat hérna heima hjá ömmu á Eyraveginum þegar að ég fór að spá hvað það var sem ég gerði á uppvaxtarárunum og hér ætla ég að rifja upp breytingaskeið ævi minnar !


Þegar ég var á bilinu 10 - 12 ára hefði þessi lýsing átt vel við mig
,, ekki er vitað um kyn en allt bendir til þess að þessi einstaklingur ber karlkynskynfæri og er þar að leiðandi í hópi stráka, gengur hann í íþróttafötum og neitar að koma inn að borða því hann vill vera í fótbolta daginn út og inn"

Á bilinu 12-13

Þá fór ég í fyrstu þröngu buxurnar mínar og er mér það einnmig minnistætt hve mikið ég emjaði og veinaði. En þetta vandist bersýnilega, ójá beauty is pain !
Þar með hélt ég samt áfram í fótbolta, bara ekki jafn ákaft !
Gelgjuskeiðið reis ákaft. Orðspor Maríu var í hættu.

á bilinu 13-14

Ef ég pæli í því þá er eitthvað sem einkennir unglingaskeiðið á Flateyri og það er rölt í kringum bæinn. Minnistæðast frá þessum árum eru bara endalaus rölt, enda dríf ég varla einn hring núna sökum ógeðis á þessu.
Man líka eftir því að ég kom fram í útvarpsþætti þarna og þar deildi ég því með alþjóð orðrétt ,,Við tölum við steina, röltum í hringi, leggjumst á götuna og bíðum eftir því að bílar keyri yfir okkur" - þetta segir ábygginlega það sem segja þarf. Einnig var mikið hangið í brundhúsinu sem var hvítur kofi sem við fundum þetta fína nafn á. þannig að eitt einkennir þetta tímabil - tilgangslaust rölt... !

á bilinu 14-15
Þá fór að hægja á Maríu og hún var með eindæmum róleg og eðlileg, að sumu leiti, en að öðru leiti er hún ekkert venjuleg. Á þessum árum fór ég meira að einbeita mér að menningalegum hlutum, hennti píku-poppinu út fyrir tónlist o.s.frv. En aftur á móti hefur hún gert hluti sem eru með eindæmum bjánalegir s.s vöfflukökubakstur, nördafélagið Þórbergur, Leikritið um Ellismell ársins, rúnt ,,flipp" og fleira..

svo eru mörg ár sem ég á eftir að fylla í mörgum gleðistundum og skemmtilegum atburðum og hlakka ég mjög til þess að lifa jákvæðu lífi.

Að sumu leiti finnst ég hafa dafnað vel og er mjög þakklát fyrir þessa ,,reynslu" af unglingsárunum en aftur á móti vona ég með eindæmum að barnið mitt verði ekki eins og ég ..

7 comments:

Anonymous said...

já maja mín, ég hef líka oft verið efins um kyn þitt :) er ekki að kaupa það að þú sért af kvenkyninu.. alveg út í hött sko :)

María Rut said...

hefðir nú alveg getað sleppt því að snerta þennan viðkvæma blett. ég hef tilfinningar. ég ein má gera grín af mér ! :'(

Anonymous said...

Mjög skemmtilegt blogg Maja mín! Gott að vita þetta þar sem við kynntumst nú ekki nema fyrir rúmlega ári eða svo! Nema að sjálfsögðu þegar við vorum keppinautar í frjálsunum, gleymdir alveg að nefna það. 8-) Hehe, En já, keep on blogging sæta.. !

Anonymous said...

Já Maja mín..þú varst nú frekar strákaleg um tíma..allavega af myndunum að dæma;) En já alltaf jafn gaman að lesa bloggin þín , háfleygnin er alveg að fara með þig hehe:)
Hlakka til að hitta þig næst skvís bæjó!(K)..!!

María Rut said...

já það ermeð svo eindæmum áhugavert að skrifa háfleygt og einnig virðist það voðalega menningalegt og nördalegt.

Anonymous said...

Já María mín..! Þessi ár hafa nú verið lærdómsrík og þú hefur lært hvernig á að vera og hvernig ekki..! En ég held nú samt að upptökin á þessari steikju sem er að ganga yfir okkur séu steinatalið og hringirnir..! En þegar þú segir það! Þegar þú fórst að ganga í þröngum buxum og vera stelpulegri tók ég upp á því að fara að ganga í skopparafötum..! Merkilegt nokk! Elska þig María mín og farðu nú vel með þig ;**

Anonymous said...

Elllskan!! Vildi bara segja að þú ert gulrót! og það mjög sæt gulrót, samt blá gulrót:/ Blár er samt kúl ! rugl er það en allavega Bæ:)