Það er svo skrýtið hvað það er erfitt að kveðja fólk. Í morgun þurfti ég að kveðja mömmu mína, pabba og systkini þar sem að þau eru að flytja til Úganda til lengdar og ég get ekki neitað því að það hafi tekið frekar mikið á mig. Ég mun auðvitað heimsækja þau eins oft og ég get en ég veit vel að þetta verður mikil þolraun, sérstaklega fyrst um sinn.
En ég ætla bara að bregða mér í Polly-Önnu leikinn góða og líta á björtu hliðarnar. Meina það eru ekki allir sem fá að fara til Afríku eitthverntíman á hverju ári. og svo er þetta voðalega gott fyrir mömmu og pabba. Þannig að ég brosi í gegnum tárin. En svo er líka alltaf svo gaman að hitta fólk aftur eftir að hafa ekki séð það lengi þannig að það er alltaf erfitt að kveðja en svo þegar maður hittir fólkið aftur er helmingi skemmtilegra.
Ég ætla ekki að niðurdrepa ykkur hin sem lesið þetta þannig að ég ætla bara að hætta núna.
kv. Maja
6 comments:
Láttu mig þekkja þetta... þetta venst þó ágætlega. Svo ku DVD markaðurinn í Úganda vera nokkuð hagstæður
haha já Klara mín ég man eftir svipnum á þér þegar ég deildi því með þér hver kostnaðurinn er þarna.. þetta var blanda af gleði/undrunar/og snilldarsvips Kláusar hellisbúa að hætti Klöru..
Já Maja mín, það er gott að leika Pollýönnu-leikinn af og til, kemur manni í gegnum ýmislegt. Við krakkarnir verðum einnig ofsalega tilbúin til að hugsa vel um þig í Reykjavíkinni, byrjum á því að fara í Húsafellsferð í lok ágúst. Leigum bústað og höfum gaman. Þú munt því eiga að minnsta kosti fjögur heimili sem vilja sem oftast fá Maju í heimsókn :)
p.s. Mér skilst að það sé miklu sniðugra fyrir þig að fara í MR - Ég á víst að taka þátt í áróðri fyrir því (segir Binna). Pros and cons eins og maðurinn sagði - en MR er og verður bestur ;)
haha vá já til í Bólstaðarferð í Húsafelli :) og gott að vita að maður eigi svona góða fjölskyldu enda vitið þið alveg 100 % hvað ég er þakklát fyrir ykkur ! En já ég fékk líka ákveðinn fyrirlestur hjá Binnu.. og ég held að það komi eiginlega ekkert annað til greina en MR..allaveganna ef ég ætla að flytja til þeirra skötuhjúa.. :)

Post a Comment