Í dag fór ég í áhugaverðan leiðangur með ömmu minni í sveitina. Við fórum á Kirkjuból í Korpudal og hittum það gamla konu sem heitir Eirný. Hún bjó á Flateyri á sínum yngri árum en flutti þaðan þegar hún var sautján ára gömul svona svipað eins og Flateyri verður í mínum augum þegar ég var gömul því að ég ætla að flytja þaðan í haust.
En ég sat þarna gapandi yfir sögunum sem þær stöllur voru að kveðast á milli sín. Þvílíkar breytingar sem hafa gengið í garð! Mér finnst það einnig frekar sorglegt því að það var mjög förugt samfélag hérna einu sinni. Margt fólk bjó í sveitinni og þetta var allt öðruvísi.
Frelsið var t.d. miklu meira. krakkar fengu að fara á öll böll 10-12 ára, þar sem konurnar voru allar í upphlut dansandi polka...
Ég fór ekki einu sinni á áramótaball 15 ára.
Einnig fannst mér það óhugsandi að margt fólk var með berkla á þessum árum og sumir misstu öll börnin sín þar á meðal ein kona sem missti manninn sinn og þrjú börn, trúlofaðist aftur og maðurinn sem hún trúlofaðist dó líka, þvílik óheppni.
En langamma mín fékk einnig berkla en hún var svo hraust að hún hristi það af sér og varð hvorki meira né minna en 96 ára gömul þessi elska.
Eitt sinn ætlaði Eirný að fara á Þingeyri á ball og hún átti heima í sveitinni. Mamma hennar lét hana fá 15 krónur til þess að borga kostnaðinn við ferðina yfir á Þingeyri, en svo fór hún að kveðja pabba sinn út á engi og hann spurði hana hvort hana vantaði ekki pening. Hún segist vera búin að fá 15 krónur.. ,, Það er nú svo lítið" sagði pabbi hennar og hann tók hana aftur inn til sín og fór til konu sinnar og bað hana að fá 25 krónur í viðbót. Hún var hæstánægð með þetta og skundaði með vini sínum og ætlaði að húkka sér far yfir. Þau mættu bíl sem var að ferja trillu og þau voru tekin uppí og þeim var sagt að setjast upp í trilluna þannig að hún fór með trillu yfir Gemlufallsheiði og ég efast stórlega um að einhver annar hafi upplifað svoleiðis. Og hún var 12 ára gömul, ég var að pæla í því hvort einhver unglingur myndi gera þetta nú til dags ?
Svo var líka strákur sem bjó á næsta bæ við hana, hann mátti aldrei gera neitt en Eirný mátti gera hvað sem hún vildi þannig að þau gerðu samkomulag sín á milli að hún myndi alltaf geyma skyrtuna hans og spariskónna í poka undir eitthverjum ákveðnum steini og þegar þau voru að fara á ball þá laumaðist hann alltaf út, fann sparifötin og hélt af stað á ball.
Svo tíðkaðist það að fólk labbaði yfir á Súganda til þess eins að fara á ball.
En svona eru breytingarnar og maður spyr sig hvort þær hafa veðið til góðs. Unglingar kunna t.d ekki að vinna eins og unglingar í þá daga. Og í þá daga tók maður ekki við öllu sem sjálfsögðum hlut heldur vann maður fyrir honum. Greinilegt að börnum var ekki leyft að vera börn lengi, heldur áttu þau að fullorðnast og sinna skyldum og þess háttar.
En það er samt svo gott að vera bara barn og ósjálfbjarga og láta dekra við sig... Hvað finnst ykkur ?
8 comments:
Já María mín. Margt hefur nú breyst síðan þá. En hinsvegar er ég mjög stolt af þessum vangaveltum þínum.
Meiriháttar blogg hjá þér, þú yrðir aldeilis ekki slæmur rithöfundur svo mikið er víst! En já það væri alveg fínt að vera svona duglegur að nenna að labba bara yfir í næsta bæ til að komast á ball.. eeen ég er mjög sátt við hvernig þetta er núna.. finnst rosalega þægilegt að vera bara ósjálfbjarga og láta dekra við mig (A) .. En það er kannski bara af því ég er svo löt.. 8-)
já Eyrún letiblóð ertu með sanni ! en reyndar samt ekki.. við löbbuðum jú alla leið upp í Miðtún og til baka. Meiri letingja hef ég áður orðið vitni af.
Heyrðu já akkurat! Við gerðum það reyndar... á met tíma býst ég við! 8-) Nokkuð duglegar finnst mér bara! :D
Góðar pælingar hjá þér. Spáðu í það að núna erum við hérna í afríku og getum ekkert gert nema að hafa bíl, það er varla að ég þori að labba yfir til Kristjáns, og það tekur tvær mínútur, en ég hef nú samt gert það (dugleg). Og það er í núinu, en í annari heimsálfu. Verum þakklát fyrir frjálsræðið sem við höfum þó á Íslandi. Söknum þín mikið og hugsum stöðugt til þín.
haha mamma að reyna að vera ,,bright" ;) neinei segi svona hún er lang klárust..
sakna ykkar líka og hugsa til ykkar alltaf.
Já ... bið að heilsa litla fólkinu :) Hödda og Júlíu.. örugglega orðin kolsvört núna :) hafið það sem best í Afríku :) ja maja, þú ert mesta spekingsvinkona sem æeg hef nokkurntíma eignast ! (k)
haha spekings vinkona :D þú ert dýrleg ! :)
Post a Comment