Í dag sat ég í rútunni. Vorum lögð af stað yfir í Önundarfjörðin og vorum rétt að keyra fram hjá Bónus, þar sá ég magnþrungna sjón, alveg yfirgengilega frumstæða og athyglisverða sjón sem ég hef aldrei áður orðið vitni af......
....Olavi http://bloggari.is/myndir.php?iImage=30500&iThis=403....
var ekki í leðurdressinu sínu. Veit ekki hvernig ég á að bregðast við þessu en kanski að leður-gallinn sé í þvotti ? , í öll þau fjölmörgu ár sem ég hef séð hann hef ég aldrei séð hann í öðrum fötum en leðurbuxum og leðurvesti í eistlenskri lopapeysu, hvað varð um íhaldssemina ??
En samt gaman að segja frá því að ég var að leita í plötu safninu hennar ömmu áðan og fann þar Leonard Cohen á vinyl og er að hlýða á það núna og þetta er mjög yndælt eftir að maður áttar sig á plötuspilaranum. Hann var einhvað vitlaust stilltur áðan því að hann Leonard kallinn var frekar skrækur en þá uppgötvaði ég það að það var vegna þess að ég var með kallinn á hraðspólun þannig að núna líða hinir ljúfu tónar um hamarinn.
7 comments:
YNDÆLT maja! hvernig dirfistu að koma með svona svakalega stafsetningavillu þegar þú talar svona vandaða forníslensku! eg er hneiksluð:(
Mér var á í messunni, á áætlaði bara að þar sem yndi, yndislegur og fleiri orð væru með y-i þá áæltaði ég bara ða yndælt væri það líka. Ég biðst innilega forláts elskan og vona að ég sé ekki úr Þórbergi þrátt fyrir þetta?
jájá.. úpps.. ætla bara að benda á stafsetningavilluna mína áður en þú gerir það:d HNEYKSLUÐ
Heyrðu ljúfan. Kemur þú á þessa síðu með yfirgang og frekju sambandi við stafsetningar-hæfileika mína, þrátt fyrir það að þú skrifar hneyksluð með venjulegu i. FACE :)
haha það var ekkert FACE í þessu ljúfan ;)
Hvurslags ? Þú varst bara hársbreidd á undan ! :(
Stelpur mínar :) takk fyrir gærkvöldið og allt frá sirka 7 ;) Gott að hitta svona ferskar stúlkukindur í fíling, yeah Burger King girl with the hat ! ;) see ya eg skít inn eldheitum myndum svo bráðlega ! :)
Post a Comment