Ég er búin að vera að dútla mér í dag heima hjá ömmu og ákvað síðan að fara í fjársjóðinn hennar ömmu langömmu, nótnasafnið.
Þar fann ég lítilfjörleg og stórmerkileg lög og var (mér til ánægju og yndisauka) að leika mér að spila nokkra littla lagstúfar þar sem ég rak augun í bók, sem heitir því fallega nafni :
,,The first book of fifty hit songs by John Lennon and Poul McCartney"
ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta þar sem að ég hafði alltaf haldið því fram að amma sem var 96 ára þegar hún dó hafði verið klassíkin uppmáluð. Alltaf þegar ég kom hoppandi í heimsókn var ætíð kveikt á Shuman, Bach eða Lizt. Svo núna tíu árum síðar er ég að uppgötva að hún var rokklingur inn við beinið.
Þetta finnst mér mjög fyndið en samt æðislegt. :)
10 comments:
Merkilegt nokk. :D
jæja maja, ég veit ekki hvernig ég myndi bregðast við þessu ef að ég sæji þessar bækur i kistu langömmu minnar:D sennilega yrði það bara 112!
haha akkurat... mér krossbrá :D vissi ekki hvort ég ætti að fara til hægri eða vinstri ..
Það er nú ekkert að skrítið að konan hafi fílað þá :) enda svo asskoti hress kerlingin:) ánægð með hana ;) veit þú ert það líka Maja mín;)))
Skemmtilegur fundur, þú getur þá bara rétt ímyndað þér hvað við getum fundið í dótinu hennar mömmu :-)
Mér skilst að sumardagurinn fyrsti hafi verið í gær, svo að því tilefni "GLEÐILEGT SUMAR" og takk fyrir véturinn. Hlökkum til að sjá þig 15 júní............
hehe ég VIL ekki ímynda mér hvað við finnum í dótinu eða ef maður getur sagt, drasl hirlsunni hennar ömmu. En já ég þakka líka fyrir VÉTURINN...mamma mamma þú þarf nú ekki að vera til ama í stafsetningunni þó þú sért flutt til Úganda? :D
ást við fyrstu sýn.
hver er seinasti ræðumaður ?? :)
það væri skemmtilegt að vita:-)
Takk fyrir helgina
Post a Comment